Lyf fyrir menn

Mucolysin - Freyðitafla
Lausasölulyf
ATC Flokkur: R05CB01
ATC Heiti: Acetylcysteinum
Norrænt Vörunúmer: 488820
Markaðsleyfishafi: Sandoz A/S
Skráningardagsetning: 01.12.2024
Magn
Mucolysin er lyf sem leysir upp slím og er notað við hósta með þykku slími.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Mucolysin inniheldur • Virka innihaldsefnið er acetýlcystein.
Hver freyðitafla inniheldur 600 mg af acetýlcysteini.
• Önnur innihaldsefni eru vatnsfrí sítrónusýra, natríumhýdrógenkarbónat, vatnsfrítt natríum-
karbónat, mannitól (E 421), vatnsfrír laktósi, askorbínsýra (E 300), sakkarínnatríum (E 954),
natríumcýklamat (E 952), natríumsítrat, sorbitól (E 420), gluconolaktón, maltódextrín,
magnesíum hýdroxíðkarbónat (E 504 II), vatnsfrí kísilkvoða, skógarberjailmefni, vanillín og
brómberjailmefni.
Lýsing á útliti Mucolysin og pakkningastærðir
600 mg:
Hvítar, sléttar, kringlóttar töflur með deiliskoru og brómberjalykt.
Freyðitöflunum er pakkað í PAP/ál/PE poka sem eru í öskju eða í PP-stauk með PE-tappa.
Pakkningastærðir:
Poki: 10, 20, 50 (2x25), 100 (4x25) freyðitöflur
Staukur: 10, 20, 50 (2x25), 100 (4x25) freyðitöflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Sandoz A/S, Edvard Thomsens Vej 14, 2300 København S, Danmörk
Framleiðandi
Salutas Pharma GmbH, Otto-von-Guericke-Allee 1, DE-39079 Barleben, Þýskaland
eða
Sandoz A/S, Edvard Thomsens Vej 14, 2300 København S, Danmörk
eða
Hermes Pharma GmbH, Hans-Urmiller-Ring 52, 82515 Wolfratshausen, Þýskaland
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2024.