Lyf fyrir menn

Movicol Junior Neutral - Mixtúruduft, lausn
Lausasölulyf
ATC Flokkur: A06AD65
ATC Heiti: Macrogolum í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 040823
Markaðsleyfishafi: Norgine Healthcare B.V.
Skráningardagsetning: 01.11.2018
Magn
Lyfið heitir Movicol Junior Neutral, mixtúruduft, lausn.
Það er hægðalyf sem notað er við langvinnri hægðatregðu hjá börnum á aldrinum 1 til 11 ára.
Movicol Junior Neutral mýkir hægðir jafnvel þótt hægðatregðan hjá barninu hafi staðið yfir lengi.
Það er hægðalyf sem notað er við langvinnri hægðatregðu hjá börnum á aldrinum 1 til 11 ára.
Movicol Junior Neutral mýkir hægðir jafnvel þótt hægðatregðan hjá barninu hafi staðið yfir lengi.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Movicol Junior Neutral inniheldur Hver Movicol Junior Neutral poki inniheldur eftirfarandi:
Macrogol 3350 6,563 g
Natríumklóríð 175,4 mg
Natríumhýdrógenkarbónat 89,3 mg
Kalíumklóríð 25,1 mg
Lyfið inniheldur 93,4 mg (4,062 mmól) af natríum (aðalefnið í matarsalti) í hverjum skammtapoka.
Þetta jafngildir 4,6 % af daglegri hámarksinntöku natríums úr fæðu skv. ráðleggingum fyrir fullorðna.
Movicol Junior Neutral inniheldur engin litar-, bragð- eða sætuefni.
Þegar einn poki er leystur upp í 62,5 ml af vatni (¼ glas), er innihald hvers poka:
Natríum 65 millimól/lítra
Klóríð 53 millimól/lítra
Hýdrógenkarbónat 17 millimól/lítra
Kalíum 5,4 millimól/lítra
Lýsing á útliti Movicol Junior Neutral og pakkningastærðir
Movicol Junior Neutral er fáanlegt í rétthyrndum skammtapoka og í rörlaga (stick-pack)
skammtapoka.
Movicol Junior Neutral er létt rennandi hvítt duft.
Movicol Junior Neutral 6,9 g skammtapoki er fáanlegur í pakkningum með 6, 8, 10, 20 eða
30 skammtapokum.
Ekki er víst að allir skammtapokar eða pakkningastærðir séu markaðssett.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Norgine Healthcare B.V.
Antonio Vivaldistraat 150
1083 HP Amsterdam
Holland
Framleiðandi
Norgine BV
Antonio Vivaldistraat 150
1083 HP Amsterdam
Holland
og/eða
Recipharm Höganäs AB
Sporthallsvägen 6
263 35 Höganäs
Svíþjóð
Umboð á Íslandi
Artasan ehf.
Sími: 414 9200
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júní 2024.