Lyf fyrir menn

Mirena - Leginnlegg
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G02BA03
ATC Heiti: Plast lyfjalykkja (IUD) með prógestógen
Norrænt Vörunúmer: 086530
Markaðsleyfishafi: Bayer AB
Skráningardagsetning: 01.08.2012
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Mirena er T-laga leginnlegg sem gefur frá sér hormónið levónorgestrel í legið. T-lögunin gerir það að
verkum að leginnleggið passar að innri lögun legsins. Á hvíta lóðrétta hlutanum af T-forminu er
sívalningur sem inniheldur levónorgestrel. Tveir brúnir þræðir eru festir á neðri enda lóðrétta hluta
T-formsins.
Mirena er notað til getnaðarvarnar og til meðferðar við mjög miklum tíðablæðingum. Ef þú notar
estrógen við tíðahvörf getur þú notað Mirena gegn ofvexti legslímu.
Börn og unglingar
Mirena er ekki ætlað til notkunar áður en kynþroska er náð (fyrstu blæðingar).
verkum að leginnleggið passar að innri lögun legsins. Á hvíta lóðrétta hlutanum af T-forminu er
sívalningur sem inniheldur levónorgestrel. Tveir brúnir þræðir eru festir á neðri enda lóðrétta hluta
T-formsins.
Mirena er notað til getnaðarvarnar og til meðferðar við mjög miklum tíðablæðingum. Ef þú notar
estrógen við tíðahvörf getur þú notað Mirena gegn ofvexti legslímu.
Börn og unglingar
Mirena er ekki ætlað til notkunar áður en kynþroska er náð (fyrstu blæðingar).
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Mirena 20 míkróg/24 klst. leginnlegg inniheldur Virka innihaldsefnið er: levónorgestrel 52 mg.
Önnur innihaldsefni eru:
• pólýtvímetýlsíloxan elastómer
• vatnsfrí kísilkvoða
• pólýetýlen
• baríumsúlfat
• járnoxíð (E172).
Lýsing á útliti Mirena og pakkningastærðir
Pakkningin inniheldur eitt leginnlegg.
Markaðsleyfishafi
Bayer AB
Box 606
SE-169 26 Solna
Framleiðandi
Bayer OY
Pansiontie 47
(P.O. Box 415)
20210 Turku
Finnland
Umboð á Íslandi
Icepharma hf
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2024.
Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar
Hægt er að nálgast ítarlegar og uppfærðar upplýsingar um Mirena með því að skanna QR-kóðann, sem
er að finna í fylgiseðlinum, á ytri umbúðum og á áminningarkortinu, með snjallsíma. Einnig er hægt
að nálgast upplýsingarnar á vefslóðinni: www.pi.bayer.com/mirena/dk-is og á vefsíðum
Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is
Upplýsingar fyrir heilbrigðisstarfsfólk
Leiðbeiningar um uppsetningu
Mirena 20 míkrógrömm/24 klst. leginnlegg
Læknir skal sjá um uppsetningu við smitgátaraðstæður.
Mirena kemur með uppsetningarbúnaði í sæfðri pakkningu sem ekki á að opna fyrr en rétt fyrir
uppsetningu. Endursæfið ekki. Mirena pakkningin er einnota. Notið ekki ef innri umbúðir eru
skemmdar eða hafa verið rofnar. Setjið leginnleggið ekki upp eftir fyrningarmánuð og ár sem fram
kemur á pakkningunni.
Varðandi tímasetningu á uppsetningu, vinsamlegast skoðið fylgiseðil Mirena.
Áminningarkort sem fylgir Mirena er í ytri öskjunni. Fylla á út áminningarkortið og afhenda konunni
eftir uppsetningu.
Undirbúningur fyrir uppsetningu
• Gera á kvenskoðun til að útiloka frábendingar gegn uppsetningu Mirena og til að útiloka
þungun (sjá Samantekt á eiginleikum lyfs, kafla 4.3 og kafla 4.4 undir Læknisskoðun/viðtal).
• Setjið upp andanefju, skoðið leghálsinn og hreinsið hann og leggöng vandlega með viðeigandi
sótthreinsivökva.
• Fáið hjálp frá aðstoðarmanni ef nauðsyn krefur.
• Haldið fast í fremri brún leghálsins með viðeigandi töng til að styðja við legið. Ef legið er
afturbeygt, getur verið betra að halda í aftari brún leghálsins. Rétta má leghálsgöngin með því að
strekkja varlega á tönginni. Töngin á að vera skorðuð á meðan innleggið er sett upp, til þess að
viðhalda vægri strekkingu leghálsins allan tímann við uppsetningu leginnleggsins.
• Farið varlega með legkanna inn um legháls að botni legsins til þess að ákvarða stefnu og dýpt
legholsins og til þess að útiloka að eitthvað óeðlilegt sé til staðar (t.d. tvíhólfa leg, sléttvöðvahnúta í
slímbeði legsins) eða getnaðarvörn í leginu sem ekki hefur verið fjarlægð. Ef erfiðleikar eru við
uppsetninguna, má íhuga útvíkkun leghálsins. Sé þörf á leghálsútvíkkun, skal íhuga svæfingu og/eða
leghálsdeyfingar (paracervical block).
Uppsetning
1. Byrjið á að opna dauðhreinsuðu umbúðirnar alveg (Mynd 1). Notið síðan sæfða hanska og
sæfðar aðstæður.
Mirena
Kragi
Merki
Sleði
Handfang
með þráðum
Uppsetningar-
hylki með bullu
og kvarða
Mynd 1
2. Ýtið sleðanum
áfram í sömu átt
og örin bendir í
fjærstu stöðu til að
hlaða
uppsetningarhylkið
(mynd 2).
MIKILVÆGT! Gætið þess að draga sleðann ekki niður þar sem það getur losað Mirena of
snemma úr uppsetningarhylkinu. Eftir losun er ekki hægt að endurhlaða hylkið.
3. Haldið sleðanum
í fjærstu stöðu,
setjið efri brún
kragans í stöðu
sem samsvarar
dýpt legsins í
samræmi við
mælingu með
legkanna (mynd 3).
Mynd 2
Mynd 3
4. Haldið sleðanum
í fjærstu stöðu,
færið uppsetningar-
búnaðinn í gegnum
leghálsinn upp í
legið þar til
kraginn er u.þ.b.
1,5-2 cm frá
leghálsinum
(mynd 4).
MIKILVÆGT! Þvingið uppsetningarbúnaðinn ekki inn. Ef nauðsyn krefur skal víkka
leghálsinn.
5. Haldið
uppsetningar-
búnaðinum
stöðugum, dragið
sleðann til baka
að merkinu svo að
láréttir armar
Mirena opnist
(mynd 5). Bíðið 5-
10 sekúndur á
meðan láréttu
armarnir breiðist
alveg út.
Mynd 4
Mynd 5
1,5-2,0 cm
6. Færið
uppsetningar-
búnaðinn varlega í
átt að legbotninum
þar til kraginn
snertir leghálsinn.
Mirena er nú við
legbotninn
(mynd 6).
7. Haldið
innsetningar-
búnaðinum
stöðugum og losið
Mirena með því að
toga sleðann alla
leið niður
(mynd 7). Haldið
sleðanum neðst og
fjarlægið
innsetningar-hylkið
með því að draga
það varlega út.
Klippið þræðina og
skiljið eftir um það
bil 2- 3 cm
sjáanlega utan við
leghálsinn.
MIKILVÆGT! Ef grunur er um að innleggið sé ekki í réttri stöðu skal athuga það (t.d. með
ómskoðun). Fjarlægið innleggið ef það liggur ekki rétt inni í legholinu. Ekki má setja aftur upp
innlegg sem hefur verið fjarlægt.
Mynd 7
Mynd 6
Fjarlæging á leginnleggi/nýtt leginnlegg sett upp
Ef fjarlægja á Mirena eða setja nýtt innlegg upp, vinsamlegast skoðið Samantekt á eiginleikum lyfs
fyrir Mirena.
Mirena er fjarlægt
með því að toga
varlega í þræðina.
með töng
(Mynd 8).
Nýtt Mirena innlegg
má setja upp strax
eftir að hitt hefur
verið fjarlægt.
Eftir að Mirena hefur
verið fjarlægt á að
athuga hvort
innleggið er óskemmt
og hefur verið
fjarlægt að fullu.
Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Mirena er hægt að nálgast á vefslóðinni: www.serlyfjaskra.is
Mynd 8