Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Minifom - Dropar til inntöku, fleyti
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Minifom - Dropar til inntöku, fleyti

Lausasölulyf
ATC Flokkur: A03AX13
ATC Heiti: Silíkonsambönd
Norrænt Vörunúmer: 036541
Markaðsleyfishafi: Perrigo Sverige AB
Skráningardagsetning: 01.12.1975
Magn
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

• Minifom er notað við ungbarnakveisu

Uppsöfnun lofts í maga og þörmum er talin vera ein aðalástæða ungbarnakveisu. Aukin uppsöfnun
lofts er yfirleitt vegna þess að barnið gleypir of mikið loft. Loftið sem gleypt er myndar loftbólur og
froðu sem kemur í veg fyrir að loftið losni. Það safnast saman og veldur magaþembu og verkjum.
Minifom dregur úr einkennum ungbarnakveisu með því að draga úr yfirborðsspennu sem veldur því að
froðan brotnar niður og loftbólurnar hverfa. Minifom verkar beint á loftið í þörmunum og er ekki tekið
upp í líkamanum. Full verkun lyfsins næst ekki fyrr en eftir nokkurra daga meðferð. Síðan er meðferð
haldið áfram án hléa.

• Magaspeglun og röntgenrannsókn með skuggaefni

Minifom er notað við undirbúning magaspeglunar (rannsókn á maganum með sérstökum
speglunartækjum) og sem hjálparefni við röntgenrannsóknir þegar notuð eru skuggaefni (sérstök
röntgenrannsókn) á maga og ristli. Droparnir minnka yfirborðsspennu. Það veldur því að froða í
maganum og ristli brotnar niður, loftbólur hverfa og skyggnið í rannsókninni verður betra.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Minifom inniheldur

- Virka innihaldsefnið er Antifoam M, sem samanstendur af dimeticoni 1000 og vatnsfrírri
kísilkvoðu.
- Rotvarnarefni eru kalíumsorbat (E 202), metýlparahýdroxýbenzóat (E 218) og
etýlparahýdroxýbenzóat (E 214).
- Önnur innihaldsefni eru glýseról, natríumkarboxýlmetýlsellulósi, pólýsorbat 60,
glýseróleinsterat, sítrónusýra, hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Minifom og pakkningastærðir

Minifom dropar eru fleyti (fljótandi, kremkennt).
Dropaflaskan er úr plasti og inniheldur 30 ml.
10 dropar = 0,3 ml.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Perrigo Sverige AB, Box 7009, SE-164 07 Kista, Svíþjóð

Framleiðandi
Orifarm Manufacturing Poland Sp. z o.o., Łyszkowice, Pólland

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2026.

Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef http://www.serlyfjaskra.is