Lyf fyrir menn

Microlax - Endaþarmslausn
Lausasölulyf
ATC Flokkur: A06AG11
ATC Heiti: Natríumlárýlsúlfóacetat þ.m.t. í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 016622
Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS
Skráningardagsetning: 01.09.2005
Magn
Microlax eykur vatnsinnihald hægðanna og gerir þær mýkri. Microlax hefur einungis staðbundna
verkun í endaþarminum, það berst ekki út í líkamann.
Þú getur notað Microlax við hægðatregðu og til þarmahreinsunar fyrir skurðaðgerð, endaþarmsspeglun
eða röntgenmyndatöku á þörmum.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
verkun í endaþarminum, það berst ekki út í líkamann.
Þú getur notað Microlax við hægðatregðu og til þarmahreinsunar fyrir skurðaðgerð, endaþarmsspeglun
eða röntgenmyndatöku á þörmum.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Microlax inniheldur Virku innihaldsefnin: natríumsítrat (tvíhýdrat) og natríumlárilsúlfóasetat.
Önnur innihaldsefni: sorbitól (E 420) (3.125 mg í hverri endaþarmstúpu), glýseról (E 422), sorbínsýra
(E 200) og hreinsað vatn.
1 ml af Microlax
inniheldur 90 mg natríumsítrat og 9 mg natríumlárilsúlfóasetat.
Lýsing á útliti Microlax og pakkningastærðir
Microlax er hægðalyf á fljótandi formi í plasttúpu. Á túpunni er sproti sem tryggir að unnt er að gefa
lyfið djúpt í endaþarminn.
Microlax er fáanlegt í pakkningum með 4, 12 eða 50 túpum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
McNeil Denmark ApS, Transformervej 14, 2860 Søborg, Danmörk.
Framleiðandi
Delpharm Orléans, 5 Avenue de Concyr, 45071 Orléans Cedex 2, Frakkland.
eða
JNTL Consumer Health (France) SAS, Domaine de Maigremont, F-27100 Val de Reuil, Frakkland.
Umboð á Íslandi
Vistor hf. Sími: 535 7000.
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2026.