Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Metylfenidat Actavis - Forðatafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Metylfenidat Actavis - Forðatafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06BA04
ATC Heiti: Methylphenidatum
Norrænt Vörunúmer: 083875
Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Skráningardagsetning: 01.03.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Við hverju Metylfenidat Actavis er notað
Metylfenidat Actavis er notað til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD):
• það er notað hjá börnum 6 ára og eldri og fullorðnum.
• Það er aðeins notað eftir að meðferðir án lyfja hafa verið reyndar, t.d ráðgjöf og atferlismeðferð.
Ekki má nota Metylfenidat Actavis til að meðhöndla athyglisbrest með ofvirkni hjá börnum yngri en
6 ára.

Hvernig Metylfenidat Actavis verkar
Metylfenidat Actavis bætir virkni ákveðinna hluta heilans sem eru vanvirkir. Lyfið getur hjálpað til
við að bæta athygli, einbeitingu og draga úr hvatvísi.
Lyfið er notað sem þáttur í meðferðaráætlun sem felst venjulega í:
• sálfræðilegri meðferð
• fræðslu og
• félagslegri meðferð.
Einungis læknar sem hafa reynslu af hegðunarvandamálum hjá börnum og unglingum eða fullorðnum
ávísa lyfinu. Ef þú ert fullorðin(n) og hefur fengið meðferð áður gerir sérfræðingurinn próf til að
staðfesta að þú hafir verið með athuglisbrest með ofvirkni frá barnsaldri.Þó að ekki sé til lækning
við athyglisbresti með ofvirkni er hægt að ná tökum á honum með meðferðarúrræðum.

Um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD)
Börnum og unglingum með athyglisbrest með ofvirkni finnst erfitt:
• að sitja kyrr og
• að einbeita sér.
Þau geta ekki gert að því að eiga erfitt með þetta.

Mörg börn og unglingar eiga í vandræðum með að vera kyrr og einbeita sér. Þegar um athyglisbrest
með ofvirkni er að ræða getur þetta þó valdið vandamálum í daglegu lífi. Börn og unglingar með
athyglisbrest með ofvirkni geta átt erfitt með að læra og vinna heimavinnuna sína. Þeim finnst erfitt að
haga sér vel heima, í skólanum og annars staðar.

Fullorðnum með athyglisbrest með ofvirkni finnst oft erfitt að einbeita sér. Þeir finna oft fyrir
eirðarleysi, óþolinmæði og eftirtektarleysi. Þeim getur þótt erfitt að skipuleggja einkalíf og vinnu.

Ekki þarf að meðhöndla alla sjúklinga sem eru með athyglisbrest með ofvirkni með lyfi.

Athyglisbrestur með ofvirkni hefur ekki áhrif á greind.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Metylfenidat Actavis inniheldur
Virka innihaldsefnið er metýlfenidathýdróklóríð

Metylfenidat Actavis 18 mg: Hver forðatafla inniheldur 18 mg af metýlfenidathýdróklóríði sem
jafngildir 15,6 mg af metýlfenidati.
Metylfenidat Actavis 27 mg: Hver forðatafla inniheldur 27 mg af metýlfenidathýdróklóríði sem
jafngildir 23,3 mg af metýlfenidati.
Metylfenidat Actavis 36 mg: Hver forðatafla inniheldur 36 mg af metýlfenidathýdróklóríði sem
jafngildir 31,1 mg af metýlfenidati.
Metylfenidat Actavis 54 mg: Hver forðatafla inniheldur 54 mg af metýlfenidathýdróklóríði sem
jafngildir 46,7 mg af metýlfenidati.
Önnur innihaldsefni eru:
Töflukjarni:
Laktósaeinhýdrat, hýprómellósi, kísill (vatnsfrí kvoða), magnesíumsterat, fúmarsýra, metakrýlsýru-
metýlmetakrýlat samfjölliða (1:1), metakrílsýru-metýlmetakrýlat samfjölliða (1:2), þríetýlsítrat,
talkúm.
Töfluhúð:
18 mg töflur: Pólývínýlalkóhól (að hluta vatnsrofið), makrógól (3350), talkúm, títantvíoxíð (E171),
gult járnoxíð (E172), rautt járnoxíð (E172).
27 mg töflur: Pólývínýlalkóhól (að hluta vatnsrofið), makrógól (3350), talkúm, títantvíoxíð (E171),
gult járnoxíð (E172), Indigo carmine aluminium lake (E132), svart járnoxíð (E172).
36 mg töflur: Pólývínýlalkóhól (að hluta vatnsrofið), makrógól (3350), talkúm, títantvíoxíð (E171).
54 mg töflur: Pólývínýlalkóhól (að hluta vatnsrofið), makrógól (3350), talkúm, títantvíoxíð (E171),
rautt járnoxíð (E172).
Prentblek:
Gljálakk, svart járnoxíð (E172), própýlenglýkól.

Lýsing á útliti Metylfenidat Actavis og pakkningastærðir

18 mg tafla: Hylkislaga, tvíkúpt, gul tafla, 6,6 mm x 11,9 mm, með „2392“ prentað á aðra hliðina með
svörtu bleki.
27 mg tafla: Hylkislaga, tvíkúpt, grá tafla, 6,7 mm x 12,0 mm, með „2393“ prentað á aðra hliðina með
svörtu bleki.
36 mg tafla: Hylkislaga, tvíkúpt, hvít tafla, 6,7 mm x 12,0 mm, með „2394“ prentað á aðra hliðina með
svörtu bleki.
54 mg tafla: Hylkislaga, tvíkúpt, rauðbrún tafla, 6,8 mm x 12,0 mm, með „2395“ prentað á aðra
hliðina með svörtu bleki.

Metylfenidat Actavis fæst í glösum með lokum með barnaöryggi, með kísilgelþurrkefni innbyggðu í
lokið, sem innihalda 28, 30 eða 90 forðatöflur (18 mg töflur) eða 28, 30 eða 100 forðatöflur (27 mg,
36 mg og 54 mg töflur). Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Actavis Group PTC ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Framleiðandi
Balkanpharma-Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Street
Dupnitsa, 2600
Búlgaría

Umboðsaðili á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2026.