Lyf fyrir menn

Metoprolol Alvogen - Forðatafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C07AB02
ATC Heiti: Metoprololum
Norrænt Vörunúmer: 065012
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.02.2021
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Metoprolol Alvogen tilheyrir flokki lyfja sem kallast beta-blokkar. Metoprolol minnkar áhrif
streituhormóna á hjartað í tengslum við líkamlegt og andlegt álag. Þetta veldur því að hjartað slær
hægar (hraði púlsins minnkar).
Metoprolol Alvogen forðatöflur eru notaðar:
Fullorðnir
- til meðferðar við háum blóðþrýstingi
- til að fyrirbyggja hjartaöng
- til meðferðar við hjartabilun
- í sumum tilvikum til meðferðar við hjartsláttarónotum (óeðlilega hraður eða óreglulegur
hjartsláttur)
- til meðferðar við ákveðnum tegundum af hjartsláttartruflunum (óreglulegum hjartslætti)
- sem fyrirbyggjandi meðferð eftir brátt hjartaáfall
- sem fyrirbyggjandi meðferð við mígreni.
Börn og unglingar, 6-18 ára
- til meðferðar við háum blóðþrýstingi.
streituhormóna á hjartað í tengslum við líkamlegt og andlegt álag. Þetta veldur því að hjartað slær
hægar (hraði púlsins minnkar).
Metoprolol Alvogen forðatöflur eru notaðar:
Fullorðnir
- til meðferðar við háum blóðþrýstingi
- til að fyrirbyggja hjartaöng
- til meðferðar við hjartabilun
- í sumum tilvikum til meðferðar við hjartsláttarónotum (óeðlilega hraður eða óreglulegur
hjartsláttur)
- til meðferðar við ákveðnum tegundum af hjartsláttartruflunum (óreglulegum hjartslætti)
- sem fyrirbyggjandi meðferð eftir brátt hjartaáfall
- sem fyrirbyggjandi meðferð við mígreni.
Börn og unglingar, 6-18 ára
- til meðferðar við háum blóðþrýstingi.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hvað inniheldur Metoprolol Alvogen - Virka innihaldsefnið er metoprolol succinat.
Hver tafla inniheldur 23,75 mg, 47,5 mg, 95 mg eða 190 mg af metoprolol succinati sem
jafngildir 25 mg, 50 mg, 100 mg eða 200 mg af metoprolol tartrati.
- Önnur innihaldsefni eru;
Töflukjarni:
Sykurkúlur (innihalda súkrósa og maíssterkju), makrógól, etýlakrýlat-metýlmetakrýlat
samfjölliða, póvídón, örkristallaður sellulósi, magnesíum sterat, vatnsfrí kísilkvoða.
Töfluhúð:
Hýprómellósi, talkúm, makrógól, títan tvíoxíð (E171).
Útlit Metoprolol Alvogen og pakkningastærðir
Metoprolol Alvogen 25 mg forðatafla
Hvít, ílöng, tvíkúpt tafla með deiliskoru á báðum hliðum (stærð: u.þ.b. 9,2 x 4,2 mm).
Metoprolol Alvogen 50 mg forðatafla
Hvít, ílöng, tvíkúpt tafla með deiliskoru á báðum hliðum (stærð: u.þ.b. 12,2 x 5,7 mm).
Metoprolol Alvogen 100 mg forðatafla
Hvít, ílöng, tvíkúpt tafla með deiliskoru á báðum hliðum (stærð: u.þ.b. 15,2 x 7,2 mm).
Metoprolol Alvogen 200 mg forðatafla
Hvít, ílöng, tvíkúpt tafla með deiliskoru á báðum hliðum (stærð: u.þ.b. 19,2 x 9,2 mm).
Þynnupakkningar:
Metoprolol Alvogen 23,75 mg forðatöflur fást í pakkningum með 14, 28, 30, 50x1, 50, 56, 60, 90, 98,
100 forðatöflum.
Metoprolol Alvogen 47,5 mg forðatöflur fást í pakkningum með 28, 30, 50x1, 50, 56, 60, 90, 98, 100
forðatöflum.
Metoprolol Alvogen 95 mg forðatöflur fást í pakkningum með 28, 30, 50x1, 50, 56, 60, 90, 98, 100
forðatöflum.
Metoprolol Alvogen 190 mg forðatöflur fást í pakkningum með 28, 30, 50, 56, 60, 90, 98, 100
forðatöflum.
Töfluglös:
Metoprolol Alvogen forðatöflur fást í pakkningum með 30, 60, 100, 250 og 500 forðatöflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Sæmundargötu 15-19
101 Reykjavík
Ísland
Framleiðandi
Merckle GmbH,
Ludwig-Merckle-Strasse 3
89143 Blaubeuren,
Þýskaland
Og
Acino AG
Leopoldstr. 115
80804 München
Þýskaland
Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í október 2020.