Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Methylphenidate Medical Valley - Forðatafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Methylphenidate Medical Valley - Forðatafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06BA04
ATC Heiti: Methylphenidatum
Norrænt Vörunúmer: 063634
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.04.2023
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Við hverju Methylphenidate Medical Valley er notað

Methylphenidate Medical Valley er notað til meðferðar við athyglisbresti með ofvirkni (ADHD):
• Það er notað hjá börnum 6 ára og eldri og fullorðnum.
• Það er aðeins notað eftir að meðferðir án lyfja hafa verið reyndar, t.d ráðgjöf og atferlismeðferð.
Ekki má nota Methylphenidate Medical Valley til að meðhöndla athyglisbrest með ofvirkni hjá
börnum yngri en 6 ára.

Hvernig Methylphenidate Medical Valley verkar

Methylphenidate Medical Valley bætir virkni ákveðinna hluta heilans sem eru vanvirkir. Lyfið getur
hjálpað til við að bæta athygli, einbeitingu og draga úr hvatvísi.

Lyfið er notað sem þáttur í meðferðaráætlun sem felst venjulega í:
• sálfræðilegri meðferð
• fræðslu
• félagslegri meðferð.
Einungis læknar sem hafa reynslu af hegðunarvandamálum hjá börnum, unglingum eða fullorðnum
ávísa lyfinu. Ef þú ert fullorðin(n) og hefur ekki fengið meðferð áður gerir sérfræðingurinn próf til að
staðfesta að þú hafir verið með athyglisbrest með ofvirkni frá barnsaldri. Þó að ekki sé til lækning við
athyglisbresti með ofvirkni er hægt að ná tökum á honum með meðferðarúrræðum.

Um athyglisbrest með ofvirkni (ADHD)

Börnum og unglingum með athyglisbrest með ofvirkni finnst erfitt:
• að sitja kyrr
• að einbeita sér.
Þau geta ekki gert að því að eiga erfitt með þetta.

Mörg börn og unglingar eiga í vandræðum með að vera kyrr og einbeita sér. Þegar um athyglisbrest
með ofvirkni er að ræða getur þetta þó valdið vandamálum í hversdagslífinu. Börn og unglingar með
athyglisbrest með ofvirkni geta átt erfitt með að læra og vinna heimavinnuna sína. Þeim finnst erfitt að
haga sér vel heima, í skólanum og annars staðar.
Fullorðnum með athyglisbrest með ofvirkni finnst oft erfitt að einbeita sér. Þeir finna oft fyrir
eirðarleysi, óþolinmæði og eftirtektarleysi. Þeim getur þótt erfitt að skipuleggja einkalíf og vinnu.

Ekki þarf að meðhöndla alla sjúklinga sem eru með athyglisbrest með ofvirkni með lyfi.
Athyglisbrestur með ofvirkni hefur ekki áhrif á greind.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Methylphenidate Medical Valley inniheldur
Virka innihaldsefnið er metýlfenidathýdróklóríð.
• Hver tafla inniheldur 18 mg, 27 mg, 36 mg eða 54 mg af metýlfenidathýdróklóríði
Önnur innihaldsefni eru:
• Töflukjarni: hýprómellósi, makrógól, succinsýra, magnesíumsterat, natríumklóríð, vantsfrí
kísilkvoða, svart járnoxíð (E172).
• Filmuhúð: sellulósaacetat, makrógól.
• Glær húð: hýprómellósi, makrógól, fosfórsýra (til pH-stillingar).
• Lituð húð: laktósaeinhýdrat, hýprómellósi, triacetin, títantvíoxíð (E171), gult járnoxíð (E172)
(18 mg), rautt járnoxíð (E172) (18 mg, 27 mg, 54 mg), svart járnoxíð (E172) (27 mg).

Lýsing á útliti Methylphenidate Medical Valley og pakkningastærðir
• 18 mg: Kringlóttar, tvíkúptar, gular filmuhúðaðar töflur u.þ.b. 9 mm í þvermál með lítilli holu
á annarri hliðinni.

• 27 mg: Kringlóttar, tvíkúptar, gráar filmuhúðaðar töflur u.þ.b. 9 mm í þvermál með lítilli holu
á annarri hliðinni.
• 36 mg: Kringlóttar, tvíkúptar, hvítar filmuhúðaðar töflur u.þ.b. 10 mm í þvermál með lítilli
holu á annarri hliðinni.
• 54 mg: Kringlóttar, tvíkúptar, bleikar filmuhúðaðar töflur u.þ.b. 10 mm í þvermál með lítilli
holu á annarri hliðinni.

Lyfið kemur í plastglasi með barnaöryggislokun úr plasti og inniheldur 2 þurrkhylki. Þurrkhylkin eru
til að halda töflunum þurrum og ekki má borða þau.

Pakkningastærðir eru: 30 töflur, 60 töflur (2x30) og 90 töflur (3x30).

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi Framleiðandi

Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
236 32 Höllviken
Svíþjóð

Framleiðandi
Laboratorios LICONSA S.A.
Av. De Miralcampo 7
19200 Azuqueca de Henares
Guadalajara,
Spáni

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Danmörk: Methylphenidate "Medical Valley"
Svíþjóð: Metylfenidat Medical Valley 18 mg; 27 mg; 36 mg; 45mg; 54 mg depottabletter
Noregur: Metylfenidat e Medical Valley
Ísland: Methylphenidate Medical Valley 18 mg; 27 mg; 36 mg; 54 mg forðatöflur
Holland: Methylfenidaat HCl Xiromed 18 mg; 27 mg; 36 mg; 45mg; 54 mg tabletten met verlengde
afgifte

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.