Lyf fyrir menn

Methotrexate Orion Pharma - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: L04AX03
ATC Heiti: Methotrexatum
Norrænt Vörunúmer: 479721
Markaðsleyfishafi: Orion Corporation
Skráningardagsetning: 01.03.2024
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Virka efnið í Methotrexate Orion Pharma töflum, methotrexat, er efni með eftirfarandi eiginleika:
- það bælir vöxt ákveðinna frumna í líkamanum sem fjölga sér hratt
- það dregur úr virkni ónæmiskerfisins (varnarkerfi líkamans).
Methotrexat er notað til að meðhöndla:
- virka liðagigt hjá fullorðnum sjúklingum
- alvarlegan, þrálátan sóra sem gerir einstakling óvinnufæran, sem svarar ekki fyllilega annarri
meðferð, eins og ljósmeðferð, PUVA og retínóíðum hjá fullorðnum sjúklingum
- alvarlega sóraliðagigt hjá fullorðnum sjúklingum
- viðhaldsmeðferð við bráðu eitilfrumuhvítblæði hjá fullorðnum, unglingum og börnum 3 ára og
eldri.
Læknirinn getur útskýrt fyrir þér hvernig Methotrexate Orion Pharma töflur hjálpa við þínu
sjúkdómsástandi.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Methotrexate Orion Pharma inniheldur - Virka innihaldsefnið er methotrexat. Hver tafla inniheldur 2,5 mg eða 10 mg af methotrexati
(sem methotrexattvínatríum).
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, örkristallaður sellulósi og magnesíumsterat.
Lýsing á útliti Methotrexate Orion Pharma og pakkningastærðir
Methotrexate Orion Pharma 2,5 mg töflur: Gul, kringlótt, óhúðuð, flöt tafla með deiliskoru og ORN 57
ígreyptu á aðra hliðina, 6 mm að þvermáli. Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta
töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.
Methotrexate Orion Pharma 10 mg töflur: Gul, hylkislaga, óhúðuð, kúpt tafla, með ORN 59 ígreyptu á
aðra hliðina og deiliskoru á hinni hliðinni, 14 mm að lengd og 6 mm að breidd. Töflunni má skipta í
jafna skammta.
Pakkningastærðir
Þynnupakkning
2,5 mg: 4, 8, 10, 12, 16, 20, 24, 30, 36, 40, 48, 50, 60, 100 og 120 töflur.
10 mg: 4, 8, 10, 12, 16, 20, 24, 30, 36, 40, 48, 50, 60, 100 og 120 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Orion Corporation
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland
Framleiðandi
Orion Corporation Orion Pharma
Tengströminkatu 8
FI-20360 Turku
Finnland
Orion Corporation Orion Pharma
Joensuunkatu 7
FI-24100 Salo
Finnland
Umboð á Íslandi:
Vistor hf. Sími: 535 7000.
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2025.