Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Metformin EQL - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Metformin EQL - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: A10BA02
ATC Heiti: Metforminum
Norrænt Vörunúmer: 533001
Markaðsleyfishafi: EQL Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.07.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Metformin EQL inniheldur metformin, lyf notað til að meðhöndla sykursýki. Það tilheyrir flokki lyfja
sem nefnast bígvaníð.
Insúlín er hormón sem framleitt er í brisi og hjálpar líkamanum að taka upp glúkósa úr blóðinu.
Líkaminn notar glúkósa til að framleiða orku eða geymir hann til að nota síðar. Ef þú ert með
sykursýki framleiðir brisið ekki nægilega mikið insúlín eða líkaminn getur ekki nýtt nægilega vel það
insúlín sem framleitt er. Þetta leiðir til hárra blóðsykursgilda. Metformin EQL hjálpar til við að lækka
blóðsykur að gildi sem er eins eðlilegt og hægt er.

Ef þú ert fullorðinn einstaklingur og of þungur, getur notkun Metformin EQL til lengri tíma einnig
dregið úr hættu á fylgikvillum sykursýki. Metformin EQL hefur verið tengt við annaðhvort stöðuga
líkamsþyngd eða lítilsháttar þyngdartap.

Metformin EQL er notað til að meðhöndla sjúklinga með sykursýki af tegund 2 (einnig nefnd
„insúlínóháð sykursýki“) þegar mataræði og hreyfing ein og sér nægja ekki til að stjórna
blóðsykursgildum, einkum hjá sjúklingum með offitu.
Fullorðnir geta notað Metformin EQL eitt sér eða ásamt öðrum lyfjum til meðferðar á sykursýki (lyf til
inntöku eða insúlín).
Börn sem eru 10 ára og eldri og unglingar geta notað Metformin EQL eitt sér eða ásamt insúlíni.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Metformin EQL inniheldur
Metformin EQL 500 mg
- Virka innihaldsefnið er metformin hýdróklóríð. Hver Metformin EQL 500 mg filmuhúðuð tafla
inniheldur 500 mg af metformin hýdróklóríði, sem samsvarar 390 mg af metformini.
− Önnur innihaldsefni eru natríum sterkjuglýkólat, póvídon, maíssterkja, vatnsfrí kísilkvoða,
magnesíumsterat, títantvíoxíð (E171), talkúm, makrógól, própýlenglýkól, hýprómellósi, vatn.
Metformin EQL 850 mg
- Virka innihaldsefnið er metformin hýdróklóríð. Hver Metformin EQL 850 mg filmuhúðuð tafla
inniheldur 850 mg af metformin hýdróklóríði, sem samsvarar 662,9 mg af metformini.
− Önnur innihaldsefni eru natríum sterkjuglýkólat, póvídon, maíssterkja, vatnsfrí kísilkvoða,
magnesíumsterat, títantvíoxíð (E171), talkúm, makrógól, própýlenglýkól, hýprómellósi, vatn.

Lýsing á útliti Metformin EQL og pakkningastærðir
Metformin EQL
Metformin EQL 500 mg filmuhúðaðar töflur eru hvítar, kringlóttar, 11 mm í þvermál, 6,0 mm að þykkt
og merktar með „ 500“ á annarri hliðinni.
Töflurnar eru markaðssettar í plastglasi með barnheldu loki, sem inniheldur 105, 300, 330 eða
400 töflur.

Metformin EQL 850 mg
Metformin EQL 850 mg filmuhúðaðar töflur eru hvítar, kringlóttar, 13,5 mm í þvermál, 7,1 mm að
þykkt og merktar með „ 850“ á annarri hliðinni.
Töflurnar eru markaðssettar í plastglasi með barnheldu loki, sem inniheldur 105 eða 210 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
EQL Pharma AB
Stortorget 1
222 23 Lund
Svíþjóð

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500

Netfang: lyfis@lyfis.is


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.