Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Melatonin Vitabalans - Tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Melatonin Vitabalans - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05CH01
ATC Heiti: Melatonin
Norrænt Vörunúmer: 392618
Markaðsleyfishafi: Vitabalans Oy
Skráningardagsetning: 01.12.2022
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Virka efnið í Melatonin Vitabalans, melatonin, tilheyrir flokki náttúrulegra hormóna sem líkaminn
framleiðir.

Melatonin Vitabalans er notað:
- Til skammtíma meðferðar við flugþreytu hjá fullorðnum. Flugþreyta eru þau einkenni sem
tímamismunur veldur þegar ferðast er yfir nokkur tímabelti – til austurs eða vesturs.
- Við svefnleysi hjá börnum og unglingum (6 til 17 ára) með ADHD, ef aðrar heilbrigðar
svefnvenjur duga ekki nógu vel.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Melatonin Vitabalans inniheldur
- Virka efnið er melatonin.
Hver 3 mg tafla inniheldur 3 mg af melatonini.
Hver 5 mg tafla inniheldur 5 mg af melatonini.

- Önnur innihaldsefni eru:
Vatnsfrítt kalsíumhýdrógenfosfat, Örkristallaður sellulósi, Magnesíum sterat, Vatnsfrí kísilkvoða,
Forgelatíneruð sterkja.

Lýsing á útliti Melatonin Vitabalans og pakkningastærðir
3 mg: hvít eða drapplit, kringlótt, kúpt tafla, merkt með „7“, þvermál 7 mm.
5 mg: hvít eða drapplit, hylkislaga tafla með deiliskoru á annarri hliðinni, 10 mm x 5 mm að stærð.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.

Þynnupakkningar (PVC/ál):

3 mg og 5 mg: 10, 30, 50 og 100 töflur

Töfluílát (ílát úr HDPE plasti og lok úr LDPE plasti):

3 mg og 5 mg: 10, 30 og 50 töflur

3 mg: 1000 töflur eingöngu fyrir lyfjaskömmtun og sjúkrahúsapótek
5 mg: 300 og 500 töflur eingöngu fyrir lyfjaskömmtun og sjúkrahúsapótek

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Vitabalans Oy
Varastokatu 7-9
13500 Hämeenlinna
Finnland

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2025.