Lyf fyrir menn

Melatonin Teva - Forðatafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05CH01
ATC Heiti: Melatonin
Norrænt Vörunúmer: 123874
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.10.2022
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Virka efnið í Melatonin Teva, melatónín, tilheyrir flokki náttúrulegra hormóna sem líkaminn
framleiðir.
Melatonin Teva er notað eitt sér til skamms tíma við frumkomnu svefnleysi (þrálátum erfiðleikum við
að sofna, halda svefni eða við litlum svefngæðum) hjá sjúklingum á aldrinum 55 ára og eldri.
„Frumkomið“ þýðir að svefnleysið er af óþekktum orsökum, engir þekktir læknisfræðilegir þættir,
geðrænir þættir eða umhverfisþættir valda því.
framleiðir.
Melatonin Teva er notað eitt sér til skamms tíma við frumkomnu svefnleysi (þrálátum erfiðleikum við
að sofna, halda svefni eða við litlum svefngæðum) hjá sjúklingum á aldrinum 55 ára og eldri.
„Frumkomið“ þýðir að svefnleysið er af óþekktum orsökum, engir þekktir læknisfræðilegir þættir,
geðrænir þættir eða umhverfisþættir valda því.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Melatonin Teva inniheldur - Virka innihaldsefnið er melatónín. Hver forðatafla inniheldur 2 mg melatónín.
- Önnur innihaldsefni eru ammoníómetakrýlat-samfjölliða af gerð B, kalsíumhýdrógenfosfat-
tvíhýdrat, laktósaeinhýdrat, vatnsfrí kísilkvoða, talkúm og magnesíumsterat.
Lýsing á útliti Melatonin Teva og pakkningastærðir
Melatonin Teva forðatöflur eru hvítar til beinhvítar, sporöskjulaga töflur með „A6“ ígreypt á annarri
hliðinni.
Þynnupakkningar (PVC/PVDC/ál)
Melatonin Teva er fáanlegt í þynnum með 20, 21, 30, 60 eða 90 forðatöflum.
Þynnupakkningar (PVC/PE/PVDC/PE/PVC/ál)
Melatonin Teva er fáanlegt í þynnum með 20, 21, 30 eða 90 forðatöflum.
HDPE-töfluílát
Melatonin Teva er fáanlegt í töfluíláti sem inniheldur 100 forðatöflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland
Framleiðandi
Balkanpharma-Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str.
2600 Dupnitza
Búlgaría
Umboðsmaður á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2025..
Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar (http://www.serlyfjaskra.is).