Lyf fyrir menn

Lymecycline Actavis - Hart hylki
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01AA04
ATC Heiti: lymecycline
Norrænt Vörunúmer: 100884
Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Skráningardagsetning: 01.07.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Lymecycline Actavis tilheyrir flokki lyfja sem kallast tetracýklín sýklalyf.
Lymecycline Actavis er notað til meðferðar við miðlungsalvarlegum til alvarlegum þrymlabólum.
Það hindrar vöxt baktería þegar um er að ræða sýkingar svo sem:
- Þrymlabólur - sem geta verið svartar eða hvítar og eru oft kallaðar fílapenslar eða
unglingabólur. Lymecycline Actavis ræðst gegn bakteríunum sem eru megin orsök þrymlabóla.
Þessar bakteríur heita Propionibacterium acnes. Hafðu samband við lækninn ef ekki er ljóst
hvers vegna lyfinu hefur verið ávísað.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknisins og leiðbeiningum á merkimiða frá
lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Lymecycline Actavis inniheldur - Virka innihaldsefnið er lymecýklín. Hvert hylki inniheldur 408 mg af lymecýklíni sem jafngildir
300 mg af tetracýklíni.
- Önnur innihaldsefni eru vötnuð kísilkvoða, magnesíumsterat, botn hylkis: títantvíoxíð (E171),
gelatín, lok hylkis: indigókarmín (E132), svart járnoxíð (E172), títantvíoxíð (171), gult járnoxíð
(E172), gelatín.
Lýsing á útliti Lymecycline Actavis og pakkningastærðir
Hörð gelatín hylki af stærð 0, blátt lok og hvítur botn.
16, 20, 21, 28, 56 og 100 hörð hylki í ál/ál þynnu.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Ísland
Framleiðandi:
Balkanpharma- Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str.
2600 Dupnitsa
Búlgaría
Umboðsmaður á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2023.