Lyf fyrir menn

Locoid Lipid - Krem
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D07AB02
ATC Heiti: Hydrocortisonum bútýrat
Norrænt Vörunúmer: 504502
Markaðsleyfishafi: CHEPLAPHARM Arzneimittel GmbH
Skráningardagsetning: 01.09.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Locoid Lipid inniheldur hýdrókortisónbútýrat. Hýdrókortisónbútýrat er nýrnahettubarkarhormón (steri),
sem dregur úr ertingu í húð.
Locoid Lipid er til meðferðar á exemi, ertingu í húð og sóra (psoriasis).
Locoid er ætlað fullorðnum, börnum og ungbörnum eldri en 3 mánaða.
sem dregur úr ertingu í húð.
Locoid Lipid er til meðferðar á exemi, ertingu í húð og sóra (psoriasis).
Locoid er ætlað fullorðnum, börnum og ungbörnum eldri en 3 mánaða.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
1. Upplýsingar um Locoid Lipid og við hverju það er notað Locoid Lipid inniheldur hýdrókortisónbútýrat. Hýdrókortisónbútýrat er nýrnahettubarkarhormón (steri),
sem dregur úr ertingu í húð.
Locoid Lipid er til meðferðar á exemi, ertingu í húð og sóra (psoriasis).
Locoid er ætlað fullorðnum, börnum og ungbörnum eldri en 3 mánaða.
2. Áður en byrjað er að nota Locoid Lipid
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Ekki má nota Locoid Lipid
- ef um er að ræða ofnæmi fyrir hýdrókortisónbútýrati eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins (talin
upp í kafla 6)
- ef þú ert með húðkvilla vegna bólgu af völdum baktería, veira, sveppa, gersveppa eða sníkjudýra. Í
þeim tilvikum átt þú einnig að fá lyf við sýkingunni
- ef þú ert með rósroða, sem er bólgusjúkdómur í húð, í andliti með roða og víkkuðum æðum
- ef þú ert með bólguexem eða ertingu í húðinni í kringum munninn.
Varnaðarorð og varúðarreglur
Leitið ráða hjá lækninum eða lyfjafræðingi áður en Locoid Lipid er notað.
- Locoid Lipid á ekki að bera á augnlok og svæði í kringum augu vegna aukinnar hættu á gláku eða
augndreri.
- Forðist tíða og langvarandi notkun Locoid Lipid í andlit, á stór húðsvæði, í handarkrika, brjóst, í
nára eða á önnur húðsvæði þar sem húðin er þunn (t.d. á kynfærasvæði) vegna hættu á
húðþynningu, aukinni upptöku lyfsins og auknum aukaverkunum.
- Hætta er á auknum aukaverkunum ef plástur eða plastumbúðir eru notaðar á meðferðarstað eða
svæðið þakið á annan hátt, t.d. með bleyju með bakhlið úr plasti. Ráðfærðu þig við lækninn.
- Þvoið hendurnar eftir hvert skipti sem Locoid Lipid er notað nema það séu hendurnar sem er verið
að meðhöndla.
- Almennt má ekki nota kremið lengur en í 4-6 vikur nema læknirinn hafi ráðlagt annað og hafi
reglulegt eftirlit.
- Leitið ráða hjá lækninum eftir langvarandi notkun. Ekki má hætta notkun kremsins skyndilega, þar
sem sjúkdómurinn getur þá blossað upp að nýju.
- Barksterar geta dulið, valdið eða stuðlað að versnun húðsýkingar. Ef sýking sem verið er að
meðhöndla versnar skal hætta notkun Locoid Lipid. Hafið samband við lækninn áður en meðferð er
hætt.
- Látið lækninn vita ef þokusýn eða aðrar sjóntruflanir koma fram.
Börn og unglingar
Börn geta verið viðkvæm fyrir notkun barkstera. Framleiðsla hormóna í nýrnahettuberki getur því orðið
hraðari hjá börnum en fullorðnum. Gæta skal varúðar við notkun Locoid Lipid hjá börnum og eins og
ráðlagt hefur verið af heilbrigðisstarfsmönnum.
Gæta á sérstakrar varúðar hjá ungbörnum með húðútbrot þ.m.t. bleyjuútbrot. Hafið samband við lækninn.
Notkun annarra lyfja samhliða Locoid Lipid
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um öll önnur lyf sem eru notuð, hafa nýlega verið notuð eða kynnu að
verða notuð.
Ekki er vitað til þess að samtímis notkun Locoid Lipid og annarra lyfja hafi skapað vandamál.
Meðganga, brjóstagjöf og frjósemi
Við meðgöngu, brjóstagjöf, grun um þungun eða ef þungun er fyrirhuguð skal leita ráða hjá lækninum eða
lyfjafræðingi áður en lyfið er notað.
Meðganga
Þú mátt aðeins nota Locoid Lipid samkvæmt fyrirmælum læknis.
Brjóstagjöf
Konur með barn á brjósti mega nota Locoid Lipid.
Ef kremið er borið á brjóst eða geirvörtur, skal þvo það af áður en barn er lagt á brjóst.
Akstur og notkun véla
Locoid Lipid hefur engin eða óveruleg áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla.
Hver og einn verður að leggja mat á getu sína til aksturs og starfa sem krefjast óskertrar árvekni. Eitt
af því sem getur haft áhrif á slíkt er lyf, vegna verkunar sinnar eða aukaverkana. Lýsing á verkun og
aukaverkunum er í öðrum köflum fylgiseðilsins. Lesið því allan fylgiseðilinn. Ef þörf er á skal ræða
þetta við lækni eða lyfjafræðing.
Locoid Lipid inniheldur cetósterýlalkóhól, própýlparahýdroxýbensóat og benzýl alkóhól
- Cetósterýlalkóhól getur valdið staðbundnum húðútbrotum (t.d. snertiexem).
- Própýlparahýdroxýbensóat (E 216) getur valdið ofnæmi (getur komið fram eftir að meðferð er
hætt).
3. Hvernig nota á Locoid Lipid
Notið lyfið alltaf eins og læknirinn hefur sagt til um. Ef ekki er ljóst hvernig nota á lyfið skal leita
upplýsinga hjá lækninum eða lyfjafræðingi.
Ráðlagður skammtur
Börn og fullorðnir
- Locoid Lipid á að bera á í jöfnu og þunnu lagi 1-2 sinnum á dag á viðkomandi húðsvæði.
- Berið lyfið aðeins á viðkomandi húðsvæði.
- Þvoið hendur vandlega eftir hverja notkun, nema það séu hendurnar sem er verið að meðhöndla.
- Varist að kremið berist í augu.
- Notið kremið ekki lengur en samkvæmt fyrirmælum læknisins.
Börn (2-11 ára) og ungbörn (3-23 mánaða)
- Hjá börnum og ungbörnum skal forðast langtímanotkun og notkun á miklu magni af Locoid Lipid.
- Takmarka skal meðferð við eins lítið svæði og mögulegt er til að ná þeim áhrifum sem stefnt er að.
- Hjá börnum og ungbörnum á einnig að forðast notkun plástra, plastumbúða eða annars sem þekur
meðferðarstaðinn, t.d. bleyju með plasti á bakhlið vegna hættu á auknum aukaverkunum.
- Hjá ungbörnum á meðferð ekki að vara lengur en í 7 daga.
Notkun
Notaðu skammtaleiðbeiningarnar fyrir fullorðna eða börn (ef það á við) hér á eftir, ef læknirinn hefur ekki
sagt til um hversu mikið krem á að nota. Hafðu samband við lækninn eða lyfjafræðing ef þú ert í vafa um
hvernig lesa á úr skammtaleiðbeiningunum.
Notaðu vísifingur til að mæla hversu mikið Locoid Lipid á að nota. Þrýstu kremi úr túpunni frá
fingurgómi að fyrstu kjúku eins og sýnt er á myndinni.
Þetta er sá skammtur sem rúmast á fingurgómi.
Þetta magn af kremi dugar til meðferðar á húðsvæði á stærð við 2 lófa fullorðins
einstaklings að fingrunum meðtöldum. Ef kremið er notað á barn skal nota fingurgóm á
vísifingri hjá fullorðnum til að mæla skammtinn.
Aldraðir
Engar sérstakar varúðarreglur eru fyrir aldraða. Skammtaaðlögun er ekki nauðsynleg.
Ef notaður er stærri skammtur en mælt er fyrir um
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið notaður (og þér líður illa), eða ef barn hefur í ógáti tekið inn
lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).
Vanlíðan vegna ofskömmtunar kemur venjulega eingöngu fram ef þú hefur notað Locoid Lipid á stór
húðsvæði í langan tíma.
Ef gleymist að nota Locoid Lipid
Notið Locoid Lipid um leið og munað er eftir því.
Ef hætt er að nota Locoid Lipid
Þú mátt aðeins hætta meðferðinni eftir samráð við lækninn. Húðsjúkdómurinn getur blossað upp að nýju
eða versnað ef þú hættir meðferðinni skyndilega, sérstaklega eftir notkun Locoid Lipid í lengri tíma.
Leitið til læknisins eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um notkun lyfsins.
4. Hugsanlegar aukaverkanir
Eins og við á um öll lyf getur þetta lyf valdið aukaverkunum, það gerist þó ekki hjá öllum.
Alvarlegar aukaverkanir
Koma örsjaldan fyrir (geta komið fram hjá færri en 1 af hverjum 10.000 notendum):
- Þreyta, minnkuð mótstaða vegna minnkaðrar starfsemi nýrnahettubarkar
- Ofnæmi.
Ekki alvarlegar aukaverkanir
Mjög sjaldgæfar (geta komið fram hjá 1-10 af hverjum 10.000 notendum):
- Þunn húð sem springur auðveldlega (húðrýrnun)
- Háræðavíkkun í húðinni
- Hringlaga smáblæðingar í húð (purpuri)
- Húðslit
- Roði í húð
- Þrymlabólur
- Útbrot í kringum munn (húðbólga í kringum munn)
- Húðútbrot og exem þ.m.t. ofnæmishúðbólga
- Ljósir blettir í húð (litabreytingar í húð)
- Skeggvöxtur
- Óeðlileg aukning á hárvexti á stöðum sem venjulega er ekki mikill hárvöxtur á
- Útbrot
- Ný sýking (afleidd sýking)
- Húðsjúkdómurinn kemur aftur eða blossar upp þegar meðferð er hætt (afturkasteinkenni).
Tíðni ekki þekkt (ekki hægt að áætla tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum):
- Sýkingar í húð
- Þokusýn
- Kláði
- Verkur á notkunarstað.
Tilkynning aukaverkana
Látið lækninn eða lyfjafræðing vita um allar aukaverkanir. Þetta gildir einnig um aukaverkanir sem ekki er
minnst á í þessum fylgiseðli. Einnig er hægt að tilkynna aukaverkanir beint til Lyfjastofnunar,
www.lyfjastofnun.is. Með því að tilkynna aukaverkanir er hægt að hjálpa til við að auka upplýsingar um
öryggi lyfsins.
5. Hvernig geyma á Locoid Lipid
- Geymið lyfið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
- Geymið við lægri hita en 25°C.
- Má ekki geyma í kæli og má ekki frjósa.
- Ekki má nota Locoid Lipid eftir fyrningardagsetningu sem tilgreind er á umbúðum.
- Eftir að túpan hefur verið opnuð skal nota hana innan 6 mánaða. Það getur verið gagnlegt að
skrifa dagsetninguna á öskjuna.
Ekki má skola lyfjum niður í frárennslislagnir eða fleygja þeim með heimilissorpi. Leitið ráða í apóteki
um hvernig heppilegast er að farga lyfjum sem hætt er að nota. Markmiðið er að vernda umhverfið.
6. Pakkninga og aðrar upplýsingar
Locoid Lipid inniheldur
- Virka innihaldsefnið er hýdrókortisónbútýrat. 1 g af kremi inniheldur 1 mg
hýdrókortisónbútýrat.
- Önnur innihaldsefni eru cetósterýlalkóhól, makrógólsetósterýleter, þunnfljótandi paraffínolía,
hvítt mjúkt parraffín, própýlparahýdroxýbensóat (E 216), vatnsfrítt natríumsítrat, vatnsfrí
sítrónusýra, benzýl alkóhól og hreinsað vatn.
Útlit og pakkningastærðir
Útlit: Hvítt krem.
Pakkningastærðir: 30 g og 100 g túpur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
CHEPLAPHARM Arzneimittel GmbH
Ziegelhof 24
17489 Greifswald
Þýskalandi
Framleiðandi
Temmler Italia S.r.l.
Via delle Industrie 2
20061 Carugate (MI)
Ítalía
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2021.