Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Letrozole Bluefish - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Letrozole Bluefish - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: L02BG04
ATC Heiti: Letrozolum
Norrænt Vörunúmer: 080470
Markaðsleyfishafi: Bluefish Pharmaceuticals AB
Skráningardagsetning: 01.03.2012
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Upplýsingar um Letrozole Bluefish og hvernig það verkar
Letrozole Bluefish inniheldur virkt efni sem nefnist letrozol. Það tilheyrir flokki lyfja sem nefnist
aromatasa-hemlar. Lyfið er notað til hormóna- (innkirtla-) meðferðar við brjóstakrabbameini.
Estrógen, sem eru kynhormón kvenna, örva oft vöxt brjóstakrabbameins. Letrozole Bluefish dregur úr
magni estrógena með því að hamla ensími (sem nefnist „aromatasi“) sem á þátt í nýmyndun estrógena
og getur þannig mögulega hindrað vöxt brjóstakrabbameins sem þarf estrógen til þess að geta vaxið.
Þar með hægir á fjölgun krabbameinsfrumna eða hún stöðvast og/eða það hægir á dreifingu þeirra um
líkamann eða slík dreifing stöðvast.

Við hverju Letrozole Bluefish er notað
Letrozole Bluefish er notað við brjóstakrabbameini hjá konum sem komnar eru yfir tíðahvörf, þ.e.
tíðablæðingar eru hættar.

Það er notað til að koma í veg fyrir endurkomu krabbameins. Hægt er að nota það sem fyrstu meðferð
fyrir skurðaðgerð ef tafarlaus skurðaðgerð á ekki við eða sem fyrstu meðferð eftir skurðaðgerð á
brjósti eða í framhaldi af fimm ára meðferð með tamoxifeni. Letrozole Bluefish er einnig notað til að
koma í veg fyrir að brjóstakrabbamein dreifist um líkamann hjá sjúklingum með langt genginn
sjúkdóm.

Leitið upplýsinga hjá lækni vakni spurningar um hvernig Letrozole Bluefish verkar eða af hverju
lyfinu var ávísað.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Letrozole Bluefish inniheldur

Virka innihaldsefnið er letrozol. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 2,5 mg af letrozoli.

Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, maíssterkja, örkristallaður sellulósi, natríumsterkjuglýkólat
(tegund A), vatnsfrí kísilkvoða, magnesíumsterat. Töflurnar eru húðaðar með makrógóli,
hýprómellósa, talkúmi, títantvíoxíði (E171), gulu járnoxíði (E172) og rauðu járnoxíði (E172).

Útlit Letrozole Bluefish og pakkningastærðir

Letrozole Bluefish eru gular, kringlóttar, 6,1 mm (±0,2 mm) að þvermáli, tvíkúptar töflur.
Töflunum er pakkað í þynnupakkningar með 30 og 100 töflum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Bluefish Pharmaceuticals AB
P.O. Box 49013
100 28 Stockholm
Svíþjóð

Framleiðandi
Bluefish Pharmaceuticals AB
Gävlegatan 22
113 30 Stockholm
Svíþjóð

Genepharm S.A.
18 km Marathonos Avenue
153 51 Pallini Attikis
Grikkland


Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er upplýsinga um lyfið

Artasan ehf., sími: 414-9200, netfang: artasan@artasan.is


Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Nafn
aðildarlands
Nafn lyfs
Austurríki Letrozol Bluefish 2,5 mg filmtabletten
Þýskaland Letrozol Bluefish 2,5 mg filmtabletten
Danmörk Letrozol Bluefish
Spánn Letrozole Bluefish 2,5 mg comprimidos recubiertos con película
Finnland Letrozole Bluefish 2,5 mg tabletti, kalvopäällysteinen
Letrozole Bluefish 2,5 mg filmdragerade tabletter
Frakkland Letrozole Bluefish 2,5 mg comprimés peliculés
Írland Letrozole Bluefish 2.5 mg film-coated tablets
Ísland Letrozole Bluefish 2,5 mg filmuhúðaðar töflur
Ítalía Brestoral 2,5 mg compresse rivestite con film
Pólland Letrozole Bluefish
Svíþjóð Letrozole Bluefish 2,5 mg filmdragerade tabletter


Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í apríl 2021.