Lyf fyrir menn

Klyx - Endaþarmslausn
Lausasölulyf
ATC Flokkur: A06AG10
ATC Heiti: Docusatum natricum þ.m.t. í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 371583
Markaðsleyfishafi: Ferring Lægemidler A/S (F)
Skráningardagsetning: 01.12.1978
Magn
Klyx er hægðalyf, sem er sett í endaþarm.
Klyx eykur vökvamagn í hægðum og mýkir þær og auðveldar þannig hægðalosun.
Vegna aukins vökvamagns kemur fram eðlileg hægðaþörf. Klyx virkar eftir u.þ.b. 5-20 mínútur.
Klyx er notað við hægðatregðu og til hreinsunar fyrir aðgerðir og þarma rannsóknir.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Klyx, 1 mg/ml + 250 mg/ml, endaþarmslausn inniheldur: - Virku innihaldsefnin eru dókusatnatríum og sorbitól.
- Önnur innihaldsefni eru: metýlparahýdroxýbensóat (rotvarnarefni E 218),
própýlparahýdroxýbensóat (rotvarnarefni E 216), natríumhýdroxíð (til að stilla sýrustig, pH),
saltsýra (til að stilla sýrustig, pH) og hreinsað vatn.
Lýsing á útliti Klyx og pakkningastærðir
Klyx er litlaus, ekki alveg tær og örlítið þykkfljótandi vökvi.
Pakkningastærðir:
1 x 120 ml, 10 x 120 ml, 1 x 240 ml og 10 x 240 ml.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Ferring Lægemidler A/S, Amager Strandvej 405, 2770 Kastrup, Danmörku.
Framleiðandi
Ferring-Léčiva, a.s., K Rybníku 475, 252 42 Jesenice u Prahy, Tékklandi.
Umboð á Íslandi
Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ.
Fylgiseðillinn var síðast uppfærður í mars 2023.