Lyf fyrir menn

Kaleorid - Forðatafla
Lausasölulyf
ATC Flokkur: A12BA01
ATC Heiti: Kalíum-Kalii chloridum
Norrænt Vörunúmer: 054877
Markaðsleyfishafi: Karo Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.12.2022
Magn
Kaleorid er forðatafla og virka efnið losnar smám saman úr henni.
Kaleorid inniheldur kalíum sem er ómissandi efni fyrir efnaskipti líkamans. Kalíumskortur getur
komið fram við ákveðna sjúkdóma og við lyfjameðferð með ýmsum lyfjum sem auka þvagmyndun
(þ.e. þvagræsilyf). Kaleorid töflur eru notaðar til meðferðar við litlu magni kalíums í blóðinu. Einnig
getur lyfið verið gefið sem fyrirbyggjandi meðferð með þvagræsilyfjum.
Vegna framleiðsluaðferðar Kaleorid er sundrun töflunnar hæg. Kalíum er í grind úr mjúku fituefni í
töflukjarnanum, sem veldur smám saman hægri losun á kalíumi í stórum hluta garnanna.
Mjúka grindin skilst út með hægðum.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Kaleorid inniheldur - Virka innihaldsefnið er kalíumklóríð 750 mg (taflan inniheldur 10 mmól af kalíumi) og
1000 mg (taflan inniheldur 13 mmól af kalíumi).
- Önnur innihaldsefni eru:
- Töflukjarni: etýlsellulósi, glýseról 85%, sterýlalkóhól, magnesíumsterat.
- Töfluhúð: hýprómellósi, títantvíoxíð (E171), talkúm, glýseról 85%, sakkarínnatríum.
Lýsing á útliti Kaleorid og pakkningastærðir
Hvítar, sporöskjulaga filmuhúðaðar forðatöflur.
Pakkningastærð 750 mg: 100 og 250 töflur.
Pakkningastærð 1000 mg: 200 töflur.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Karo Pharma AB
Box 16184
103 24 Stockholm
Svíþjóð
Framleiðandi
Paramedical A/S
Vassingerødvej 3-7
DK-3540 Lynge
Danmörk
allphamed PHARBIL Arzneimittel GmbH
Hildebrandstr. 10-12
37081 Göttingen
Þýskaland
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júlí 2025desember 2024 nóvember 2020.