Lyf fyrir menn

Imodium - Filmuhúðuð tafla
Lausasölulyf
ATC Flokkur: A07DA03
ATC Heiti: Loperamidum
Norrænt Vörunúmer: 114072
Markaðsleyfishafi: McNeil Sweden AB
Skráningardagsetning: 01.02.2014
Magn
Imodium kemur þarmahreyfingum í eðlilegt horf, vinnur gegn vökvatapi og eykur getuna til þess að
halda hægðum.
Imodium er notað við tilfallandi (skyndilegum) niðurgangi. Læknirinn getur einnig ávísað lyfinu til
meðferðar við langvarandi (langvinnum) niðurgangi og handa þeim sem eru með poka á kviðnum
(stóma) eftir sumar maga- og þarmaaðgerðir, sem og þeim sem eiga í erfiðleikum með að halda
hægðum (hægðaleki).
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 2 daga.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Imodium inniheldur - Virka innihaldsefnið er: loperamidhýdróklóríð 2 mg
- Önnur innihaldsefni eru: mjólkursykureinhýdrat 163 mg, maíssterkja, örkristallaður sellulósi,
magnesíumsterat, hýprómellósi, talkúm, própýlenglýkól, macrogol, pólýsorbat 60,
pólýsorbat 80, karnaubavax, hvítt bývax og títantvíoxíð E171 (litarefni).
Lýsing á útliti Imodium og pakkningastærðir
Töflur 2 mg: hvítar, kringlóttar, auðkenndar „L2“ á annarri hliðinni.
Fáanlegar í þynnupakkningum með 16, 40 og 100 töflum.
Pakkningar með 16 töflum fást án lyfseðils til meðferðar við bráðum niðurgangi.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
McNeil Sweden AB
Solna, Svíþjóð
Framleiðandi
JNTL Consumer Health (France) SAS, Domaine de Maigremont, 27100 Val de Reuil, Frakkland.
Umboð á Íslandi
Vistor hf. Sími: 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2024.