Lyf fyrir menn

Imigran - Nefúði, lausn
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N02CC01
ATC Heiti: Sumatriptanum
Norrænt Vörunúmer: 441451
Markaðsleyfishafi: GlaxoSmithKline Pharma A/S
Skráningardagsetning: 01.04.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Imigran inniheldur Virka innihaldsefnið er súmatriptan (10 mg eða 20 mg).
Önnur innihaldsefni eru:
Kalíumtvíhýdrógenfosfat, tvínatríumfosfat (vatnsfrítt), brennisteinssýra, natríumhýdroxíð og hreinsað
vatn.
Lýsing á útliti Imigran og pakkningastærðir
Imigran nefúði, lausn 20 mg/skammt er fáanlegt í pakkningu með 2 og 6 stakskömmtum.
Imigran Juvenil nefúði, lausn 10 mg/skammt er fáanlegt í pakkningu með 2 og 6 stakskömmtum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi:
GlaxoSmithKline Pharma A/S
Delta Park 37
2665 Vallensbæk Strand
Danmörk
Framleiðandi:
GlaxoSmithKline Manufacturing S.p.A.
Strada Proviniale Asolona N.90, San Polo Torrile (PR)
Parma
Ítalía
Umboð á Íslandi
Vistor ehf., sími: 535-7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2025.
Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Lesið notkunarleiðbeiningarnar vandlega og fylgið þeim ráðleggingum og leiðbeiningum sem eru
gefnar. Geymið notkunarleiðbeiningarnar þannig að auðvelt sé að nálgast þær og helst í öskjunni
með lyfinu.
• Imigran nefúða er pakkað í sérpakkningu og inniheldur aðeins einn skammt.
Nefúðinn er aðeins notaður einu sinni.
Geyma þarf nefúðann í þynnupokanum þar til rétt fyrir notkun.
Nefúðinn samanstendur af eftirfarandi hlutum:
• Nefstútur
• Fingragrip
• Stimpill, þegar ýtt er á bláa stimpilinn losnar skammturinn
1. Komdu þér þægilega fyrir.
2. Snýttu þér.
3. Taktu nefúðann úr þynnupokanum rétt áður en á að nota hann.
4. Haltu nefúðatækinu á milli fingranna eins og sýnt er á myndinni.
Mundu að það er aðeins einn skammtur svo ekki þrýsta á stimpilinn fyrr en
nefstúturinn er í nefinu.
5. Lokið annarri nösinni með að þrýsta með einum fingri á hlið hennar.
6. Stingdu nefstútnum í hina nösina, eins langt og hægt er með góðu móti (u.þ.b.
1 cm). Haltu höfðinu uppréttu eins og sýnt er á myndinni. Andaðu rólega að þér í
gegnum nefið (ekki sjúga upp í nefið) og þrýstu samtímis á bláa stimpilinn með
þumalfingrinum. Þú gætir fundið mótstöðu í stimplinum og stundum heyrist
smellur.
Fjarlægðu nefúðatækið. Andaðu út í gegnum munninn.
7. Haltu fyrir nefið í u.þ.b. 10 sekúndur þannig að lyfið renni ekki út. Þú skalt sitja
upprétt-/ur í 5 mínútur eftir að hafa notað nefúðann. Nefúðatækið er nú tómt og
má farga því. Nefúðatækið er búið til úr umhverfisvænum efnum og má farga með
heimilissorpi.
Ef Imigran er úðað í augun fyrir slysni á að skola þau vel með vatni. Ef þú finnur samt sem áður fyrir
ertingu í augunum skaltu hafa samband við lækninn.
Ráðleggingar:
Nefúðann á að geyma við lægri hita en 30C. Má ekki frjósa. Vont bragð sem gæti komið hverfur
fljótt, það getur verið merki um að nefúðinn er ekki notaður rétt. Algengustu mistökin eru að sjúga upp
í nefið þegar skammturinn er losaður. Þetta er ekki hættulegt en verkunin af nefúðanum getur
minnkað.