Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Idotrim - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Idotrim-image

Idotrim - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01EA01
ATC Heiti: Trimethoprimum
Norrænt Vörunúmer: 018689
Markaðsleyfishafi: Orion Corporation (I)
Skráningardagsetning: 01.08.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Idotrim er notað við þvagfærasýkingum og sem fyrirbyggjandi meðferð við endurteknum
þvagfærasýkingum.

Idotrim kemur veg fyrir vöxt baktería við þvagfærasýkingu.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Idotrim inniheldur

• Virka innihaldsefnið er trimetoprim. Hver tafla inniheldur 100 mg eða 160 mg trimetoprim.
• Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, maíssterkja, forhleypt sterkja, povidon, polysorbat 80,
crospovidon, örkristallaður sellulósi, magnesíumsterat, hypromellósi, propylenglycol.

Lýsing á útliti Idotrim og pakkningastærðir

100 mg töflur eru hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar, kúptar með deilistriki og eru 9 mm í þvermál.
160 mg töflur eru hvítar, filmuhúðaðar, kringlóttar, kúptar með deilistriki og eru 11 mm í þvermál.

Deilistrikið er ekki ætlað til að brjóta töfluna.

Pakkningastærðir
100 mg töflur: plastglas með 30 og 100 töflum.
160 mg töflur: plastglas með 14, 20 og 100 töflum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Orion Corporation
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland

Framleiðandi
Orion Corporation Orion Pharma
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland

Orion Corporation Orion Pharma
Joensuunkatu 7
FI-24100 Salo
Finnland

Umboð á Íslandi:
Vistor hf., sími: 535-7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2023.