Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Íbúfen - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Íbúfen - Filmuhúðuð tafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: M01AE01
ATC Heiti: Ibuprofenum
Norrænt Vörunúmer: 116551
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.12.2008
Magn
Íbúfen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru NSAID-lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar) og draga
úr verkjum, bólgum og hita.

Íbúfen 200 mg filmuhúðaðar töflur eru notaðar við vægum til meðal miklum verkjum eins og
höfuðverk, einnig mígreni höfuðverk, tannpínu, tíðaverkjum og hita.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Íbúfen inniheldur

- Virka innihaldsefnið er íbúprófen. Hver filmuhúðuð tafla inniheldur íbúprófen 200 mg.
- Önnur innihaldsefni eru:
Töflukjarni: örkristallaður sellulósi, vatnsfrí kísilkvoða, hýdroxýprópýlsellulósi,
natríumlárýlsúlfat, natríumkroskarmellósi, talkúm
Filmuhúð (Opadry (hvítt) 06B28499): hýprómellósi, makrógól 400, títantvíoxíð (E171).

Lýsing á útliti Íbúfen og pakkningastærðir

Filmuhúðaðar töflur.
Hvítar, sporöskjulagaðar filmuhúðaðar töflur með deiliskoru á annarri hliðinni.

Þessar töflur eru fáanlegar án lyfseðils í þynnupakkningum með 6, 10, 12, 20, 24, 30 og 50 töflum eða
töfluglösum með 10, 20, 30 og 50 töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Balkanpharma – Dupnitsa AD
3, Samokovsko Shosse Str.
2600 Dupnitsa
Búlgaría

eða

Balkanpharma – Razgrad AD
68 Aprilsko vastanie Blvd.

Razgrad 7200
Búlgaría

Umboð á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2025.


Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is