Lyf fyrir menn

Hydroxyzine Medical Valley - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05BB01
ATC Heiti: Hydroxyzinum
Norrænt Vörunúmer: 495745
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.10.2022
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hydroxyzine Medical Valley tilheyrir flokki lyfja sem kallast róandi andhistamín. Það bælir ákveðna
starfsemi í heilanum án þess að vera ávanabindandi. Það hefur einnig mótverkandi áhrif gegn
histamíni, efni sem finnst í vefjum líkamans.
Hydroxyzine Medical Valley er notað við:
- kvíða hjá fullorðnum frá 18 ára aldri
- ofsakláða og kláða hjá fullorðnum, unglingum og börnum 6 ára og eldri.
starfsemi í heilanum án þess að vera ávanabindandi. Það hefur einnig mótverkandi áhrif gegn
histamíni, efni sem finnst í vefjum líkamans.
Hydroxyzine Medical Valley er notað við:
- kvíða hjá fullorðnum frá 18 ára aldri
- ofsakláða og kláða hjá fullorðnum, unglingum og börnum 6 ára og eldri.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hydroxyzine Medical Valley inniheldur - Virka innihaldsefnið er hýdroxýzínhýdróklóríð
- 10 mg töflur: Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg af hýdroxýzínhýdróklóríði
- 25 mg töflur: Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 25 mg af hýdroxýzínhýdróklóríði
- Önnur innihaldsefni eru
- Töflukjarni: Laktósaeinhýdrat, kalsíumfosfat (E341), forhleypt sterkja, natríum lárýlsúlfat
(E487), vatnsfrí kísilkvoða (E551), magnesíum sterat (E470b)
- Filmuhúð: Títan tvíoxíð (E171), hýdroxýprópýlmetýlsellulósi, macrogol 400
Lýsing á útliti Hydroxyzine Medical Valley og pakkningastærðir
10 mg töflur: Hvítar eða beinhvítar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar 5,50 mm töflur, sléttar á
báðum hliðum.
25 mg töflur: Hvítar eða beinhvítar, kringlóttar, tvíkúptar filmuhúðaðar 8,00 mm töflur, með
deiliskoru á annarri hliðinni og slétt á hinni hliðinni.
Hydroxyzine Medical Valley er fáanlegt í hvítum PVC/PVdC-ál þynnum, sem er pakkað í ytri öskju, í
pakkningastærðum með 25 eða 100 filmuhúðuðum töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
236 32 Höllviken
Svíþjóð
Framleiðandi
PharmaS d.o.o.
Industrijska cesta 5
44317 Potok, Popovača
Króatía
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Land Heiti 25 mg filmuhúðaðra
taflna
Heiti 10 mg filmuhúðaðra
taflna
Ísland Hydroxyzine Medical Valley
25 mg filmuhúðaðar töflur
Hydroxyzine Medical Valley
10 mg filmuhúðaðar töflur
Danmörk Hydroxyzine Medical Valley Hydroxyzine Medical Valley
Svíþjóð Hydroxyzine Medical Valley
25 mg filmdragerade tabletter
Hydroxyzine Medical Valley
10 mg filmdragerade tabletter
Noregur Hydroxyzine Medical Valley
25 mg filmdrasjerte tabletter
Hydroxyzine Medical Valley
10 mg filmdrasjerte tabletter
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2023.