Lyf fyrir menn

Hydroxocobalamin G.L. Pharma - Stungulyf, lausn
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: B03BA03
ATC Heiti: Hydroxocobalaminum
Norrænt Vörunúmer: 373784
Markaðsleyfishafi: G.L. Pharma GmbH
Skráningardagsetning: 01.10.2023
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hydroxocobalamin G.L. Pharma inniheldur virka efnið hýdroxókóbalamín (B12-vítamín).
Hydroxocobalamin G.L. Pharma er notað til að fyrirbyggja og meðhöndla illkynja blóðleysi (blóðleysi
af völdum B12-vítamínskorts) og annars konar B12-vítamínskort þegar meðferð með töflum til
inntöku er ekki talin nægjanleg eða við hæfi.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Hydroxocobalamin G.L. Pharma er notað til að fyrirbyggja og meðhöndla illkynja blóðleysi (blóðleysi
af völdum B12-vítamínskorts) og annars konar B12-vítamínskort þegar meðferð með töflum til
inntöku er ekki talin nægjanleg eða við hæfi.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hydroxocobalamin G.L. Pharma inniheldur - Virka innihaldsefnið er: hýdroxókóbalamín (B12-vítamín). Ein 1 ml lykja inniheldur 1,04 mg af
hýdroxókóbalamín asetati sem jafngildir 1 mg af hýdroxókóbalamíni (B12-vítamín).
- Önnur innihaldsefni eru: natríumasetatþríhýdrat (til að stilla sýrustig), ísedik (til að stilla
sýrustig), natríumklóríð, vatn fyrir stungulyf.
Lýsing á útliti Hydroxocobalamin G.L. Pharma og pakkningastærðir
Hydroxocobalamin G.L. Pharma 1 mg/ml stungulyf, lausn er tær, rauður vökvi.
Lyfið fæst í öskjum með 3 og 5 lykjum úr glæru gleri merktum með tveimur lituðum hringjum. Hver
lykja inniheldur 1 ml af lausn.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfi:
G.L. Pharma GmbH
Schlossplatz 1
8502 Lannach
Austurríki
Framleiðandi:
G.L. Pharma GmbH
Schlossplatz 1
8502 Lannach
Austurríki
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Svíþjóð: Hydroxocobalamin G.L. Pharma
Noregur: Hydroxocobalamin G.L. Pharma
Finland: Hydroxocobalamin G.L. Pharma
Ísland: Hydroxocobalamin G.L. Pharma
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í júlí 2023.
<------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------>
Eftirfarandi upplýsingar eru einungis ætlaðar heilbrigðisstarfsmönnum:
Hvernig opna á Hydroxocobalamin G.L. Pharma lykju
1. Staðsetjið eins punkta skurðinn (one-point-cut), sem er merktur efst á lykjunni með lituðum
punkti og látið hann vísa upp.
2. Tryggið að öll lausn í efri hluta lykjunnar renni niður í neðri hlutann með því að slá létt í lykjuna.
3. Setjið aðra höndina efst á lykjuna með þumalinn á skurðinum.
4. Brjótið efri hlutann af með því að þrýsta honum frá þér.
Venjulegur skammtur er:
Í alvarlegum bráðum tilfellum greinds eða gruns um taugakvilla: 1 lykja í vöðva eða undir húð daglega
eða annan hvern dag í 1 til 2 vikur eða þar til blóðgildi eru eðlileg.
Í alvarlegum bráðum tilfellum án taugakvilla: 1 lykja gefin annan hvern dag, allt að 5 sinnum alls.
Viðhaldsskammtur: 1 lykja í vöðva eða undir húð á 1 til 3 mánaða fresti.