Lyf fyrir menn

Hydrokortison Orion - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: H02AB09
ATC Heiti: Hydrocortisonum
Norrænt Vörunúmer: 487361
Markaðsleyfishafi: Orion Corporation
Skráningardagsetning: 01.11.2015
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Hydrokortison Orion töflur innihalda lyf sem er kallað hydrocortison. Hydrocortison tilheyrir hópi
lyfja sem eru kölluð sterar, barksterar fullu nafni. Þessir barksterar eru náttúrulega til staðar í
líkamanum, og þeir hjálpa til við að viðhalda heilsu og velferð. Það að örva líkamann með viðbótar-
barksterum (eins og hydrocortisoni) er áhrifarík leið til að meðhöndla ýmsa sjúkdóma sem tengjast
bólgum í líkamanum. Hydrocortison dregur úr þessum bólgum, sem gætu annars orðið til þess að
ástand þitt versni. Þú verður að taka þetta lyf reglulega til að ná hámarksárangri.
Hydrokortison Orion töflur eru notaðar fyrir:
- fullorðna, börn og unglinga til að bæta upp hydrocortison því hluti nýrnahettunnar starfar ekki
eðlilega
- neyðarmeðferð við alvarlegum astma, ofnæmisviðbragði vegna lyfja, blóðvatnseitrun
(ofnæmisviðbrögð við próteinum), staðbundinni bólgu í húð og/eða slímhúð (ofnæmisbjúgur),
og lífshættulegum ofnæmisviðbrögðum (ofnæmislost).

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hydrokortison Orion inniheldur - Virka innihaldsefnið er hydrocortison. Hver tafla inniheldur 10 mg af hydrocortisoni.
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, maíssterkja, talkúm, gelatína og magnesíumsterat.
Lýsing á útliti Hydrokortison Orion og pakkningastærðir
Hvítar, sléttar töflur með skoru og flötum, sniðnum brúnum u.þ.b. 7 mm að þvermáli, merktar með
„ORN35“.
Hydrokortison Orion 10 mg töflur eru fáanlegar í þynnupakkningum með 20, 30 og 100 töflum.
Gulbrún 15 ml glerkrukka, með álloki og þurrkefni, inniheldur 100 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Orion Corporation
Orionintie 1
FI-02200 Espoo
Finnland
Framleiðandi
Orion Corporation Orion Pharma
Joensuunkatu 7
FI-24100 Salo
Finnland
Hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa á hverjum stað ef óskað er upplýsinga um lyfið:
Umboð á Íslandi
Vistor hf. Sími: 535 7000.
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.