Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Hjartamagnýl - Magasýruþolin tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Hjartamagnýl - Magasýruþolin tafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: B01AC06
ATC Heiti: Acidum acetylsalicylicum
Norrænt Vörunúmer: 427289
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.04.2019
Magn
Hjartamagnýl inniheldur asetýlsalicýlsýru, sem í lágum skömmtum tilheyrir flokki lyfja sem hindra
samloðun blóðflagna. Blóðflögur eru örsmáar frumur í blóðinu sem valda því að blóðið storknar og
taka þátt í segamyndun. Þegar blóðtappi myndast í slagæð kemur hann í veg fyrir blóðstreymi og
hindrar súrefnisflutning. Þegar þetta gerist í hjartanu getur það valdið hjartaáfalli eða hjartaöng; í
heilanum getur þetta valdið heilablóðfalli.

Hjartamagnýl er tekið til að minnka hættuna á að blóðtappar myndist og fyrirbyggja þannig frekari:
- hjartaáföll
- heilablóðföll
- vandamál í hjarta og æðum hjá sjúklingum með hjartaöng (tegund brjóstverkja) sem er í
jafnvægi eða óstöðug.

Hjartamagnýl er einnig notað til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa eftir ákveðnar tegundir
hjartaaðgerða til að víkka eða opna æðar.

Ekki er mælt með notkun lyfsins við bráðaaðstæður. Það er eingöngu hægt að nota sem fyrirbyggjandi
meðferð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hvað inniheldur Hjartamagnýl

Virka innihaldsefnið er asetýlsalicýlsýra. Hver sýruþolin tafla inniheldur 75 mg af asetýlsalicýlsýru.

Önnur innihaldsefni eru: töflukjarni: örkristallaður sellulósi, maíssterkja, vatnsfrí kísilkvoða,
sterínsýra; filmuhúð: metakrýlsýra - etýlakrýlat samfjölliða (1:1), pólýsorbat 80, natríumlárýlsúlfat,
tríetýlsítrat, talkúm.

Útlit Hjartamagnýl og pakkningastærðir

Hjartamagnýl sýruþolnar töflur 75 mg eru sporöskjulaga, hvítar, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur,
9,2 x 5,2 mm.

Pakkningastærðir:
Þynnur: 10, 20, 28, 30, 50, 56, 60, 90, 100 sýruþolnar töflur.
Töfluglös: 10, 30, 50, 100, 500 sýruþolnar töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Actavis Limited
BLB 016, Bulebel Industrial Estate
Zejtun ZTN 3000
Malta

Balkanpharma Dupnitsa AD
3, Samokovsko Shosse Str.
2600 Dupnitsa
Búlgaría

Umboðsmaður á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður


Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í ágúst 2025.