Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Histasín - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Histasín - Filmuhúðuð tafla

Lausasölulyf
ATC Flokkur: R06AE07
ATC Heiti: Cetirizinum
Norrænt Vörunúmer: 153080
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.01.1998
Magn
Virka efnið í Histasín er cetirizín tvíhýdróklóríð.
Histasín er ofnæmislyf.

Histasín er ætlað fullorðnum og börnum 6 ára og eldri við
- einkennum í nefi og augum vegna árstíðabundins eða stöðugs ofnæmiskvefs.
- langvinnum ofsakláða af óþekktum orsökum.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Histasín inniheldur

- Virka innihaldsefnið er cetirizín tvíhýdróklóríð. Ein filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg af
cetirizín tvíhýdróklóríði.
- Önnur innihaldsefni eru örkristallaður sellulósi, laktósamonohýdrat, krospóvidón, vatnsfrí
kísilkvoða og magnesíumstearat í töflukjarna. Í filmuhúð eru hýprómellósa, makrógólstearat,
örkristallaður sellulósi, própýlenglýkól og títandíoxíð (E171).

Lýsing á útliti Histasín og pakkningastærðir

Hvítar eða nærri hvítar, tvíkúptar, sporöskjulaga filmuhúðaðar töflur, með deiliskoru á annarri
hliðinni. Stærð u.þ.b. 5,8 x 11,6 mm. Töflunni má skipta í tvo jafna skammta.
Þynnupakkning (ál/ál).
Pakkningastærðir: 10, 30 og 100 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland

Framleiðandi
Teva Pharma S.L.U
Poligono Industrial Malpica c/C n
o

50016 Zaragoza
Spánn

Umboðsmaður á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2023.