Lyf fyrir menn

Haldol - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05AD01
ATC Heiti: Haloperidolum
Norrænt Vörunúmer: 436915
Markaðsleyfishafi: Essential Pharma Limited
Skráningardagsetning: 01.12.1972
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Heiti lyfsins er Haldol.
Haldol inniheldur virka efnið haloperidol. Það tilheyrir flokki lyfja sem nefnast „geðrofslyf“.
Haldol er notað hjá fullorðnum, unglingum og börnum við sjúkdómum sem hafa áhrif á hvernig þú
hugsar, þér líður eða þú hagar þér. Þetta eru meðal annars geðraskanir (svo sem geðklofi og
geðhvarfasýki) og hegðunarvandi.
Þessir sjúkdómar geta valdið því að:
• Þér finnst þú vera ruglaður (með óráði)
• Þú sérð, heyrir, hefur tilfinningu fyrir eða finnur lykt af hlutum sem eru ekki til staðar
(ofskynjanir)
• Þú trúir hlutum sem eru ekki sannir (ranghugmyndir)
• Þú ert óvanalega tortrygginn (ofsóknarkennd)
• Þú verður mjög ör, æstur, ákafur, hvatvís eða ofvirkur
• Þú verður árásargjarn, fjandsamlegur eða ofbeldisfullur.
Hjá unglingum og börnum er Haldol notað til að meðhöndla geðklofa hjá sjúklingum á aldrinum 13 til
17 ára og til að meðhöndla hegðunarvanda hjá sjúklingum á aldrinum 6 til 17 ára.
Haldol er einnig notað:
• Hjá unglingum og börnum á aldrinum 10 til 17 ára og hjá fullorðnum vegna hreyfinga og hljóða
sem þú hefur ekki stjórn á (kækir), t.d. í verulegu Tourette heilkenni
• Hjá fullorðnum til að hjálpa til við að hafa stjórn á hreyfingum í Huntingtons sjúkdómi.
Haldol er stundum notað þegar önnur lyf eða önnur meðferð hefur ekki skilað árangri eða valdið
óásættanlegum aukaverkunum.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Haldol inniheldur Virka innihaldsefnið er haloperidol. Hver 1 mg tafla inniheldur 1 mg af haloperidoli. Önnur
innihaldsefni eru: laktósaeinhýdrat, maíssterkja, súkrósi, talkúm og hert bómullarfræjaolía.
Lýsing á útliti Haldol og pakkningastærðir
Haldol 1 mg töflur eru hvítar og kringlóttar, með krossdeiliskoru á annarri hliðinni og „EP“ á hinni
hliðinni. Töflurnar eru fáanlegar í þynnupakkningum sem innihalda 100 töflur.
Markaðsleyfishafi
Essential Pharma Limited,
Vision Exchange Building
Triq it-Territorjals, Zone 1,
Central Business District,
Birkirkara, CBD 1070,
Malta
Framleiðandi
Lusomedicamenta Sociedade Técnica Farmacêutica, S.A., Estrada Consiglieri Pedroso, 69 – B Queluz
de Baixo, 2730-055 Barcarena, Portúgal.
Þetta lyf er með markaðsleyfi í EES löndum undir eftirfarandi heiti:
Austurríki, Belgía, Kýpur, Frakkland, Ísland, Ítalía, Lúxemborg,
Malta, Holland, Noregur, Portúgal, Rúmenía, Svíþjóð:
Haldol
Danmörk, Finnland: Serenase
Þýskaland: Haldol-Essential
Pharma
Grikkland: Aloperidin
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í október 2025.