Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Grazax - Frostþurrkuð tungurótartafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Grazax - Frostþurrkuð tungurótartafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: V01AA02
ATC Heiti: grasfrjó
Norrænt Vörunúmer: 025425
Markaðsleyfishafi: ALK-Abelló A/S
Skráningardagsetning: 01.02.2008
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Grazax inniheldur ofnæmisvakaútdrátt úr grasfrjókornum. Grazax er notað til meðferðar á
nefslímubólgu og tárubólgu af völdum grasfrjókorna hjá fullorðnum og börnum (5 ára og eldri).
Grazax temprar ofnæmissjúkdóminn með því að auka ónæmisþol fyrir grasfrjókornum.
Læknar með reynslu af meðferð ofnæmissjúkdóma hjá börnum velja þau börn sem fá meðferð.
Læknirinn metur ofnæmiseinkennin og gerir húðpróf eða tekur blóðprufu til að meta hvort meðferð
með Grazax henti.
Ráðlagt er að taka fyrstu frostþurrkuðu tungurótartöfluna undir eftirliti læknis. Þetta er
varúðarráðstöfun sem gerð er til þess að unnt sé að meta næmi hvers og eins sjúklings fyrir
meðferðinni. Það gefur þér einnig tækifæri til að ræða hugsanlegar aukaverkanir við lækninn.
Grazax er ávísað af læknum með reynslu af meðferð við ofnæmi.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Grazax inniheldur

- Virka innihaldsefnið er SQ staðlað ofnæmisvakaextrakt grasfrjókorna úr vallarfoxgrasi
(Timothy (Phleum pratense)). Virkni fyrir hverja frostþurrkaða tungurótartöflu er gefin með því
að nota eininguna SQ-T*. Virkni einnar frostþurrkaðrar tungurótartöflu er 75.000 SQ-T. Magn
ofnæmisvakans Phl p 5 í hverri frostþurrkaðri tungurótartöflu er 6 míkrógrömm.

* Staðlaðar gæðaeiningar töflu (SQ-T)

- Önnur innihaldsefni eru gelatína (úr fiski), mannitól og natríum hýdroxíð.

Lýsing á útliti Grazax og pakkningastærðir
Hvít til beinhvít, kringlótt, frostþurrkuð tungurótartafla merkt með ígreyptri mynd á annarri hliðinni.

Álþynnuspjald með afrífanlegri álþynnu í pappaöskju. Hvert þynnuspjald inniheldur 10 frostþurrkaðar
tungurótartöflur.
Eftirtaldar pakkningastærðir eru fáanlegar: 10 (1x10), 30 (3x10), 90 (9x10) eða 100 (10x10)
frostþurrkaðar tungurótartöflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
ALK-Abelló A/S
Bøge Allé 6-8
2970 Hørsholm
Danmörk

Framleiðandi
ALK-Abelló S.A.
Miguel Fleta 19
28037 Madrid
Spánn

Umboð á Íslandi
Vistor hf., sími: 535-7000

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2026.