Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Glucophage - Filmuhúðuð tafla
Lyf fyrir menn
Glucophage-image

Glucophage - Filmuhúðuð tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: A10BA02
ATC Heiti: Metforminum
Norrænt Vörunúmer: 008023
Markaðsleyfishafi: Merck Santé s.a.s.
Skráningardagsetning: 01.01.2002
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Glucophage inniheldur metformin sem er lyf til meðferðar á sykursýki. Það tilheyrir hópi lyfja sem
nefnast bígvaníð.

Insúlín er hormón sem framleitt er af briskirtli og gerir líkamanum kleift að taka upp glúkósa (sykur)
úr blóðinu. Líkaminn notar glúkósa til að framleiða orku eða geymir hann til að nota síðar.
Ef þú ert með sykursýki framleiðir briskirtillinn ekki nægilega mikið insúlín eða líkaminn getur ekki
nýtt á réttan hátt það insúlín sem hann framleiðir. Þetta leiðir til hás gildis glúkósa í blóðinu.
Glucophage hjálpar til við að lækka glúkósa í blóði og gera gildi hans eins eðlilegt og unnt er.

Ef þú ert fullorðinn einstaklingur yfir kjörþyngd getur taka Glucophage í lengri tíma einnig dregið úr
hættu á fylgikvillum sykursýki. Glucophage hefur verið tengt við stöðuga líkamsþyngd eða minni
háttar þyngdartap.

Glucophage er notað til meðhöndlunar á sjúklingum með sykursýki af tegund 2 (einnig nefnd
“insúlínóháð sykursýki”) þegar mataræði og hreyfing nægja ekki til að stjórna glúkósagildum í blóði.
Það er einkum notað hjá sjúklingum í yfirþyngd.

Fullorðnir geta tekið Glucophage eitt síns liðs eða ásamt öðrum lyfjum til meðferðar á sykursýki
(lyf sem tekin eru inn um munn eða insúlín).
Börn sem eru 10 ára og eldri og unglingar geta tekið Glucophage eitt síns liðs eða ásamt insúlíni.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Glucophage inniheldur

- Virka innihaldsefnið er metforminhýdróklóríð. Ein filmuhúðuð tafla af Glucophage 1000 mg
inniheldur 1000 mg metforminhýdróklóríð sem samsvarar 780 mg af metformini.
- Önnur innihaldsefni eru póvídon K 30, magnesiumsterat, hýprómellósa, makrógól 400 og
makrógól 8000.

Lýsing á útliti Glucophage og pakkningastærðir

Glucophage 1000 mg filmuhúðaðar töflur eru hvítar, sporöskjulaga og kúptar beggja megin, 19 mm x
10,5 mm að stærð og 6,4 mm að þykkt, með deilistriki beggja megin og “1000” er grafið á aðra
hliðina. Skipta má töflunni í jafna helminga.
Töflurnar fást í þynnupakkningum með 1 (x30), 20, 30, 50, 60, 90, 100, 120, 180 eða 600 töflum eða
plastglösum með barnaöryggisloki, sem innihalda 20, 30, 50, 60, 90, 100, 120, 180 eða 600 töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.


Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi

Merck Santé s.a.s.
37 rue Saint Romain
F-69379 Lyon 8
Frakkland

Framleiðandi

Merck Santé s.a.s.
2 rue du Pressoir Vert
45400 Semoy
Frakkland

eða

Merck S.L.
Poligono Merck
Mollet Del Vallès 08100 Barcelona
Spánn

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:

Austurríki, Búlgaría, Kýpur, Tékkland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ísland, Írland,
Ítalía, Lettland, Noregur, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Svíþjóð: Glucophage

Ungverjaland: Merckformin

Portúgal: Risidon

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.