Lyf fyrir menn

Gestrina - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03AC09
ATC Heiti: Desogestrelum
Norrænt Vörunúmer: 155478
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.01.2013
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Gestrina er notað til að koma í veg fyrir þungun.
Gestrina inniheldur lítið magn af kvenhormóninu desógestrel sem er prógestógen. Því er Gestrina
prógestógen-pilla. Öfugt við samsettar getnaðarvarnartöflur innihalda prógestógen-pillur ekki
estrógen.
Flestar prógestógen-pillur verka einkum með því að koma í veg fyrir að sæðisfrumur komist inn í
legið. Prógestógen-pillur koma ekki alltaf í veg fyrir þroska eggsins en það er aðalverkun samsettra
getnaðarvarnartaflna. Gestrina er frábrugðin öðrum prógestógen-pillum, því það inniheldur
hormónaskammt sem í flestum tilvikum er nægilega mikill til þess að koma í veg fyrir að eggið
þroskist. Því er Gestrina áhrifamikil getnaðarvörn.
Andstætt samsettum getnaðarvarnartöflum geta konur sem þola ekki estrógen og konur með barn á
brjósti notað Gestrina. Ókosturinn er hins vegar sá að óreglulegar blæðingar geta komið fram við
notkun Gestrina. Einnig geta blæðingar stöðvast.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Gestrina inniheldur - Virka innihaldsefnið er desógestrel.
Hver filmuhúðuð tafla inniheldur 75 míkrógrömm desógestrel.
- Önnur innihaldsefni eru: laktósaeinhýdrat (sjá einnig „Gestrina inniheldur mjólkursykur
(laktósa)“ í kafla 2), maíssterkja, póvídón, sterínsýra, all-rac-alfa-tókóferól, vatnsfrí kísilkvoða,
hýprómellósi, makrógól 400, talkúm, títantvíoxíð.
Lýsing á útliti Gestrina og pakkningastærðir
Gestrina töflur eru hvítar eða beinhvítar, kringlóttar, tvíkúptar, filmuhúðaðar töflur 5,4 - 5,8 mm að
þvermáli án áletrana.
Á hverju töfluspjaldi eru 28 töflur. Hver askja inniheldur 1, 3 eða 6 spjöld.
Hulstur gæti fylgt með töfluspjöldunum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland
Framleiðandi
Cenexi
17 Rue de Pontoise
95520 Osny
Frakkland
Umboðsmaður á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2023.