Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Furadantin - Tafla
Lyf fyrir menn
Furadantin-image

Furadantin - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01XE01
ATC Heiti: Nitrofurantoinum
Norrænt Vörunúmer: 026682
Markaðsleyfishafi: Viatris ApS
Skráningardagsetning: 01.03.2004
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Furadantin inniheldur nitrofurantoin sem hefur bakteríudrepandi áhrif. Það er virkt gegn flestum
tegundum baktería sem valda þvagfærasýkingum.
Furadantin er notað við þvagfærasýkingum.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Furadantin inniheldur

- Virka innihaldsefnið er nitrofurantoin, 5 mg töflur eða 50 mg töflur.
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat 177,5 mg (5 mg töflur) eða 132,5 mg (50 mg töflur),
kartöflusterkja, metýlsellulósi, vatnsfrí kísilkvoða, magnesíumsterat.

Lýsing á útliti Furadantin og pakkningastærðir
Furadantin 5 mg töflur eru gular, kringlóttar, kúptar með deilikrossi og áletruninni „FV“ innan sviga
og eru 9 mm að þvermáli.
Pakkningastærðir:
50 töflur í plastglasi.

Furadantin 50 mg töflur eru gular, kringlóttar, kúptar með deilikrossi og áletruninni „FZ“ innan sviga
og eru 9 mm að þvermáli.
Pakkningastærðir:
15 og 25 töflur í þynnupakkningu, 100 töflur í plastglasi.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Viatris ApS
Borupvang 1
2750 Ballerup
Danmörk

Framleiðandi
Sofarimex Indústria Química e Farmacêutica, S.A., Portúgal

Fulltrúi markaðsleyfishafa:
Icepharma hf
Lynghálsi 13
110 Reykjavík

Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í júlí 2025.