Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Fungyn - Hart hylki
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Fungyn - Hart hylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J02AC01
ATC Heiti: Fluconazolum
Norrænt Vörunúmer: 156427
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.11.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Fungyn tilheyrir flokki lyfja sem kallast sveppalyf. Virka efnið er flúkónazól.

Fungyn er notað til meðhöndlunar sýkinga af völdum sveppa og getur einnig verið notað til að
fyrirbyggja candidasýkingar. Algengasta orsök sveppasýkinga er sveppur sem kallast Candida.

Þú gætir fengið þetta lyf frá lækninum til meðhöndlunar eftirtalinna sýkinga:
- Mengisbólga af völdum cryptococca - sveppasýking í heila.
- Þekjumygla - sýking í lungnaberkjum.
- Sýkingar af völdum Candida sem koma fram í blóði, líffærum (t.d. hjarta, lungum) eða þvagrás.
- Þruskusýking í slímhúð - sýking í munni, koki eða særindi undan gervitönnum.
- Þruskusýking á kynfærum - sýking í leggöngum eða getnaðarlim.
- Húðsýkingar - t.d. fótsveppir, reformur, klofsveppir, naglasýking.

Þú gætir einnig fengið Fungyn til að:
- Fyrirbyggja endurtekna mengisbólgu af völdum cryptococca.
- Fyrirbyggja endurtekna þruskusýkingu í slímhúð.
- Draga úr endurteknum þruskusýkingum í leggöngum.
- Fyrirbyggja Candida sýkingar (ef þú ert með bælt ónæmiskerfi).

Börn og unglingar (0 til 17 ára)
Þú gætir fengið þetta lyf frá lækninum við eftirtöldum sveppasýkingum:
- Þruskusýking í slímhúð - sýking í munni eða hálsi.
- Sýkingar af völdum Candida sem koma fram í blóði, líffærum (t.d. hjarta, lungum) eða þvagrás.
- Mengisbólga af völdum cryptococca - sveppasýking í heila.

Þú gætir einnig fengið Fungyn til að:

- Fyrirbyggja Candida sýkingar (ef þú ert með bælt ónæmiskerfi).
- Fyrirbyggja endurtekna mengisbólgu af völdum cryptococca.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Fungyn inniheldur
- Virka innihaldsefnið er flúkónazól.
Hvert Fungyn 50 mg hart hylki inniheldur 50 mg af flúkónazóli.
Hvert Fungyn 150 mg hart hylki inniheldur 150 mg af flúkónazóli.
Hvert Fungyn 200 mg hart hylki inniheldur 200 mg af flúkónazóli.
- Önnur innihaldsefni eru:
Innihald hylkis: laktósaeinhýdrat, örkristallaður sellulósi, forhleypt maíssterkja, kísiltvíoxíð,
magnesíumsterat og natríumlárýlsúlfat.
Hylkisskel: títantvíoxíð (E171), kínólíngult (E104) (eingöngu 50 mg og 150 mg), gult járnoxíð
(E172) (eingöngu 50 mg), patent blátt V (E131) (eingöngu 50 mg), sunset yellow (E110)
(eingöngu 150 mg) og gelatín.

Útlit Fungyn og pakkningastærðir
Fungyn 50 mg hörð hylki eru græn-hvít á lit, stærð 2.
Fungyn 150 mg hörð hylki eru gul á lit, stærð 0.
Fungyn 200 mg hörð hylki eru hvít á lit, stærð 0.

Fungyn er pakkað í pappakassa sem inniheldur viðeigandi fjölda af gegnsæjum PVC/álþynnum.

Pakkningastærðir:
Fungyn 50 mg hörð hylki: 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50 eða 100 hörð hylki.

Fungyn 150 mg hörð hylki: 1, 2 eða 4 hörð hylki.

Fungyn 200 mg hörð hylki: 7, 10, 14, 20, 28, 50 eða 100 hörð hylki.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland

Framleiðandi
Pharmathen S.A., 6 Dervenakion str, 15344 Pallini, Attiki, Grikkland

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Belgía: Fluconazole Viatris / mg harde capsules
Eistland: Fluconazole ELVIM mg capsules, hard
Grikkland: Stabilanol 200 mg capsules
Holland: Fluconazol Pharmathen / mg capsules
Kýpur: Mycozal / mg capsules
Lettland: Fluconazole ELVIM mg capsules
Litháen: Fluconazole ELVIM mg capsules
Lúxemborg: Fluconazole Viatris / mg gélule

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2024.