Lyf fyrir menn

Fungoral - Hársápa
Lausasölulyf
ATC Flokkur: D01AC08
ATC Heiti: Ketoconazolum
Norrænt Vörunúmer: 452022
Markaðsleyfishafi: Karo Healthcare AB
Skráningardagsetning: 01.01.2012
Magn
Fungoral er hársápa sem er notuð við flösu. Læknir getur einnig ávísað lyfinu við flösuhúðbólgu í
hársverði. Flasa orsakast af sveppinum Malassezia sem er venjulega til staðar í hársverðinum. Yfirleitt
veldur hann engum óþægindum en stundum getur húðin orðið fyrir áhrifum. Þá myndast flasa og
einkenni eins og kláði og flögnun koma fram.
Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Hvað inniheldur Fungoral - Virka innihaldsefnið er ketoconazol. 1 ml af hársápu inniheldur ketoconazol 20 mg.
- Önnur innihaldsefni eru natríumlárýletersúlfat, dinatríummonolárýletersúlfósúkkínat, kókos-
hnetufitusýrudietanólamíð, lárdimonium vatnsrofið dýrakollagen, Macrogol 120 metýlglúkósu-
dióleat, saltsýra, natríumhýdroxíð, natríumklóríð, rotvarnarefni (ímíðúrea), litarefni E127
(erytrosin) og hreinsað vatn.
Útlit Fungoral og pakkningastærðir
Hársápan er rauðleit.
Fungoral hársápa fæst í 60 ml og 120 ml pakkningum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Karo Healthcare AB
Box 16184
103 24 Stockholm
Svíþjóð
Framleiðandi
Lusomedicamenta – Sociedade Técnica Farmacêutica, S.A., Estrada Consiglieri Pedroso 69 B, Queluz
de Baixo, 2730-055 Barcarena, Portúgal
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
Alvogen ehf.
Sími: 522 2900
Netfang: info@alvogen.is
Þessi fylgiseðill var síðast samþykktur í desember2025.