Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Folsyra Evolan - Tafla
Lyf fyrir menn
Folsyra Evolan-image

Folsyra Evolan - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: B03BB01
ATC Heiti: Acidum folicum
Norrænt Vörunúmer: 496614
Markaðsleyfishafi: Evolan Pharma AB
Skráningardagsetning: 01.11.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Folsyra Evolan inniheldur fólínsýru, gerð af B-vítamíni sem er nauðsynleg fyrir eðlilega blóðmyndun.
Venjuleg fæst nægjanleg fólínsýra með fæðuinntöku, en við ákveðnar aðstæður getur verið þörf á
fólínsýru til viðbótar. Langtíma skortur á fólínsýru getur komið fram sem ákveðin gerð af blóðleysi.
Folsyra Evolan er notað til að lækna eða koma í veg fyrir skort á fólínsýru.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Folsyra Evolan inniheldur

- Virka innihaldsefnið er 5 mg af fólínsýru í hverri töflu.
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, sellulósi á duftformi, talkúm, vatnsfrí kísilkvoða,
magnesíumsterat.

Lýsing á útliti Folsyra Evolan og pakkningastærðir

Folsyra Evolan eru gular til gul-appelsínugular, doppóttar, kringlóttar töflur, kúptar öðrum megin með
deiliskoru á annarri hliðinni og 7 mm í þvermál.
Töflunni má skipta í jafna skammta.

Pakkningastærðir eru 100 og 105 töflur (þynnur) og 1.000 töflur (plastglas).

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Evolan Pharma AB
Box 120
182 12 Danderyd
Svíþjóð

Framleiðandi
S.C. Laropharm S.R.L.
145 A Alexandriei street,
Bragadiru, Ilfov,
Rúmenía


Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í ágúst 2019.