Lyf fyrir menn

Fluticasone Teva - Nefúði, dreifa
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: R01AD12
ATC Heiti: Fluticasonum INN fúróat
Norrænt Vörunúmer: 133805
Markaðsleyfishafi: Teva B.V.
Skráningardagsetning: 01.02.2025
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Fluticasone Teva (flútíkasónfúróat) tilheyrir flokki lyfja sem kallast sykursterar.
Fluticasone Teva verkar með því að draga úr bólgum af völdum ofnæmis (nefslímubólgu) og dregur
þannig úr einkennum ofnæmis.
Fluticasone Teva nefúði er notaður við einkennum ofnæmiskvefs, svo sem nefstíflu, nefrennsli eða
ertingu í nefi, hnerra, votum augum, ertingu eða roða í augum, hjá fullorðnum og börnum, 6 ára og
eldri.
Ofnæmiseinkenni geta komið fram á ákveðnum árstímum og orsakast af ofnæmi fyrir frjókornum frá
grasi eða trjám (heymæði), eða þau geta komið fram allan ársins hring og orsakast af ofnæmi fyrir
dýrum, rykmaurum eða myglusveppum til að nefna nokkur þau algengustu.
Fluticasone Teva verkar með því að draga úr bólgum af völdum ofnæmis (nefslímubólgu) og dregur
þannig úr einkennum ofnæmis.
Fluticasone Teva nefúði er notaður við einkennum ofnæmiskvefs, svo sem nefstíflu, nefrennsli eða
ertingu í nefi, hnerra, votum augum, ertingu eða roða í augum, hjá fullorðnum og börnum, 6 ára og
eldri.
Ofnæmiseinkenni geta komið fram á ákveðnum árstímum og orsakast af ofnæmi fyrir frjókornum frá
grasi eða trjám (heymæði), eða þau geta komið fram allan ársins hring og orsakast af ofnæmi fyrir
dýrum, rykmaurum eða myglusveppum til að nefna nokkur þau algengustu.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Fluticasone Teva inniheldur • Virka efnið er flútíkasónfúróat. Hver úðaskammtur gefur 27,5 míkrógrömm af flútíkasónfúróati.
• Önnur innihaldsefni eru glúkósi, örkristallaður sellulósi (E460), natríum karamellósa (E466),
pólýsorbat 80 (E433), bensalkónklóríð, tvínatríumedetat (sjá kafla 2).
Lýsing á útliti Fluticasone Teva og pakkningastærðir
Lyfið er hvít dreifa, til notkunar í nef, í gulbrúnu glerglasi, með úðapumpu, úðara og hlífðarhettu
Fluticasone Teva er fáanlegt í pakkningastærðum með 120 úðaskömmtum.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Teva B.V.
Swensweg 5
2031 GA Haarlem
Holland
Framleiðendur
Teva Czech Industries s.r.o.
Ostravská
Komárov
747 70 Opava
Tékkland
Umboðsmaður á Íslandi:
Teva Pharma Iceland ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í mars 2025.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
LEIÐBEININGAR, SKREF FYRIR SKREF, UM NOTKUN NEFÚÐANS
Útlit nefúðans
Nefúðinn er í gulbrúnu glerglasi, með úðapumpu, úðara og hlífðarhettu.
Það inniheldur 120 úðaskammta.
Fimm mikilvæg atriði sem þú þarft að vita um notkun
Fluticasone Teva er í gulbrúnu glasi. Ef þú þarft að athuga hversu mikið er eftir skaltu halda
nefúðanum í uppréttri stöðu á móts við bjart ljós. Þannig er hægt að sjá stöðuna í gegnum flöskuna.
• Þegar nefúðinn er notaður í fyrsta skipti þarftu að hrista kann kröftuglega, með
hlífðarhettunni á, í u.þ.b. 10 sekúndur. Þetta er mikilvægt þar sem Fluticasone Teva er þykk
dreifa sem verður að vökva þegar það er hrist vel. Eingöngu er hægt að úða lyfinu þegar það er
orðið að vökva.
• Pumpunni verður að þrýsta ákveðið alla leið niður, til að losa úðaskammt í gegnum úðastútinn.
• Hafðu hlífarhettuna alltaf á nefúðanum þegar þú ert ekki að nota hann. Hlífðarhettan
heldur ryki frá, heldur þrýstingnum inni og kemur í veg fyrir að úðastúturinn stíflist.
• Notaðu aldrei nál eða eitthvað beitt til að hreinsa úðastútinn. Það skemmir nefúðann.
Nefúðinn undirbúinn fyrir notkun
Þú þarft að undirbúa nefúðann:
• áður en þú notar hann í fyrsta skipti
• ef þú hefur ekki sett hlífðarhettuna á í 5 daga eða ef nefúðinn hefur ekki verið notaður í 30 daga
eða meira.
Með því að undirbúa nefúðann má hjálpa til við að tryggja að þú fáir ávallt allan skammtinn af lyfinu.
Fylgdu þessum skrefum:
1. Hristu nefúðann kröftuglega, með hlífðarhettunni á, í u.þ.b. 10 sekúndur.
2. Fjarlægðu hlífðarhettuna – sjá mynd 1.
Mynd 1
3. Haltu nefúðanum uppréttum, hallaðu honum síðan og beindu úðastútnum frá þér.
4. Settu tvo fingur sitt hvoru megin við úðarann og hafðu þumalinn á botni flöskunnar. Þrýstu
niður og losaðu pumpuna. Gerðu þetta a.m.k. 6 sinnum, þar til fíngerður úði losnar út í loftið –
sjá mynd 2.
Mynd 2
5. Nefúðinn er nú tilbúinn til notkunar.
Notkun nefúðans
1. Hristu nefúðann kröftuglega.
2. Fjarlægðu hlífðarhettuna.
3. Snýttu þér til að hreinsa nasirnar, hallaðu höfðinu síðan örlítið fram á við.
4. Settu úðastútinn í aðra nösina og lokaðu hinni nösinni með fingrinum – sjá mynd 3. Beindu
endanum á úðastútnum aðeins út á við, frá miðnesinu. Þetta hjálpar til við að koma lyfinu á
réttan stað í nefinu
5. Þrýstu pumpunni ákveðið alla leið niður, um leið og þú andar að þér í gegnum nefið.
Mynd 3
6. Taktu úðastútinn úr nefinu og andaðu frá þér í gegnum munninn.
7. Ef taka á 2 úðaskammta í hvora nös skaltu endurtaka skref 4 til 6.
8. Endurtaktu skref 4 til 7 fyrir hina nösina.
9. Settu hlífðarhettuna aftur á nefúðann.
Hreinsun nefúðans
Eftir hverja notkun:
1. Þurrkaðu af úðastútnum og innan úr hlífðarhettunni með hreinni, þurri bréfþurrku
2. Notaðu ekki vatn við þrifin.
3. Notaðu aldrei nál eða eitthvað beitt á úðastútinn.
4. Settu hlífðarhettuna alltaf aftur á að þessu loknu.
Ef nefúðinn virðist ekki virka:
• Athugaðu hvort enn sé eitthvað eftir af lyfinu. Kíktu á stöðuna í gegnum flöskuna. Ef
vökvastaðan er mjög lág getur verið að ekki sé nóg eftir svo nefúðinn virki.
• Athugaðu hvort nefúðinn hefur skemmst.
• Ef þú heldur að úðastúturinn geti verið stíflaður, skaltu ekki nota nál eða eitthvað beitt til að
hreinsa hann.
• Reyndu að koma honum í lag með því að fylgja leiðbeiningunum undir „Nefúðinn undirbúinn
fyrir notkun“.
• Ef hann virkar ekki enn, eða ef hann myndar vökvabunu, skaltu fara með nefúðann aftur í
lyfjabúðina og fá ráðleggingar.