Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Fluoxetin WH - Hart hylki
Lyf fyrir menn
Fluoxetin WH-image

Fluoxetin WH - Hart hylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06AB03
ATC Heiti: Fluoxetinum
Norrænt Vörunúmer: 402038
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf
Skráningardagsetning: 01.07.2017
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Fluoxetin WH inniheldur virka efnið flúoxetín sem er þunglyndislyf og tilheyrir flokki lyfja sem kallast
sértækir serótónínendurupptökuhemlar (SSRI).

Lyfið er er notað við:

Fullorðnir:
Alvarleg þunglyndisköst.
Þráhyggju- og áráttusýki.
Lotugræðgi (bulimia nervosa): Fluoxetin WH er notað til viðbótar við sálræna meðferð til að draga úr
átköstum og búkhreinsun.

Börn og unglingar 8 ára og eldri:
Meðal til alvarlegt þunglyndi, ef ekki næst árangur eftir 4 - 6 skipti af samtalsmeðferð. Fluoxetin WH á
einungis að gefa börnum og unglingum með miðlungs til alvarlegt þunglyndi samhliða samtalsmeðferð.

Verkun Fluoxetin WH
Allir eru með efni í heilanum sem kallað er serótónín. Fólk sem á við þunglyndi eða þráhyggju- og
áráttusýki eða lotugræðgi að stríða, er með lægri gildi af serótóníni en aðrir. Ekki hefur fundist
fullnaðarskýring á því hvernig Fluoxetin WH og önnur SSRI-lyf verka, en þau geta hjálpað til við að
auka gildi serótóníns í heilanum.
Mikilvægt er að meðhöndla þessa sjúkdóma, til að hjálpa þér við að ná bata. Ef þeir eru ekki
meðhöndlaðir, getur ástand þitt orðið viðvarandi og getur auk þess versnað og orðið erfiðara að
meðhöndla.
Þú getur þurft á meðferð að halda í nokkrar vikur eða mánuði til að tryggja að þú losnir við einkennin.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Fluoxetin WH inniheldur
− Virka innihaldsefnið er flúoxetínhýdróklóríð. Hvert hylki inniheldur 20 mg af af flúoxetíni (sem
flúoxetínhýdróklóríð).
− Önnur innihaldsefni eru: Maíssterkja og vatnsfrí kísilkvoða. Sjálf hylkin innihalda gelatín,
indigótín (E132), kínólíngult (E104), hreinsað vatn og títantvíoxíð (E171).


Lýsing á útliti Fluoxetin WH og pakkningastærðir
Fluoxetin WH fæst í pakkningum sem innihalda 14, 28, 56 eða 98 hylki.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Williams & Halls ehf
Reykjavíkurvegi 62
220 Hafnarfjörður
Ísland

Framleiðandi
MEDINFAR MANUFACTURING, S.A.
Parque Industrial Armando Martins Tavares
Rua Outeiro da Armada, 5
Condeixa-a-Nova
3150-194 Sebal
Portúgal

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2024.