Lyf fyrir menn

Fluconazole Alvogen - Innrennslislyf, lausn
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J02AC01
ATC Heiti: Fluconazolum
Norrænt Vörunúmer: 095715
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Skráningardagsetning: 01.10.2011
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Fluconazole Alvogen inniheldur - Virka innihaldsefnið er flúkónazól.
- Hver ml inniheldur 2 mg flúkónazól.
- Önnur innihaldsefni eru: natríumklóríð, þynnt saltsýra, þynnt natríumhýdroxíðlausn, vatn fyrir
stungulyf.
Lýsing á útliti Fluconazole Alvogen og pakkningastærðir
Fluconazole Alvogen innrennslislyf, lausn er tær litlaus vökvi í 25 ml, 50 ml, 100 ml eða 200 ml
hettuglösum úr gleri.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Alvogen ehf.
Smáratorgi 3
201 Kópavogur
Ísland
Framleiðandi:
Pharmathen S.A., 6 Dervenakion str. 153 51 Pallini, Attiki, Grikkland.
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í febrúar 2024.
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Eftirfarandi upplýsingar eru einungis ætlaðar heilbrigðisstarfsmönnum:
Fluconazole Alvogen innrennslislyf er gefið með hægu innrennsli í bláæð á 30 mínútum.
Innrennslishraðinn á ekki að vera meiri en 10 ml/mínútu.
Vegna þess að Fluconazole Alvogen er í þunnri natríumklóríðlausn þarf að huga að innrennslishraða
þegar lyfið er gefið sjúklingum sem aðeins mega fá takmarkað magn natríums eða vökva.
Flúkónazól innrennslislyfi má blanda í eftirtalda innrennslisvökva.
a) Glúkósa 20%.
b) Ringerslausn.
c) Hartmannslausn.
d) Kalíumklóríð / glúkósulausn.
e) Natríumbíkarbónat 4,2%.
f) Saltvatn 0,9%.
Flúkónazól má gefa sem innrennsli með einhverjum af ofantöldum lausnum um æðalegg sem er til
staðar. Enda þótt ekkert liggi fyrir um ósamrýmanlega blöndun er blöndun við önnur lyf fyrir
innrennsli ekki ráðlögð.
Farga skal öllum lyfjaleifum og/eða úrgangi í samræmi við gildandi reglur.