Lyf fyrir menn

Fluconazol Krka - Hart hylki
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J02AC01
ATC Heiti: Fluconazolum
Norrænt Vörunúmer: 017668
Markaðsleyfishafi: KRKA, d.d., Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.09.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Fluconazol Krka tilheyrir flokki lyfja sem kallast „sveppalyf“. Virka efnið er fluconazol.
Fluconazol Krka er notað til að meðhöndla sýkingar af völdum sveppa og einnig er hægt að nota það
til að koma í veg fyrir að þú fáir candidasýkingu. Gersveppurinn Candida er algengasta orsök
sveppasýkinga.
Fullorðnir
Læknirinn gæti hafa ávísað þessu lyfi til að meðhöndla eftirfarandi sveppasýkingar:
- Heilahimnubólgu af völdum sætumyglu (cryptococcal meningitis) – sveppasýking í heila.
- Þekjumyglu (coccidiodomycosis) – sjúkdómur í lungum.
- Sýkingar af völdum Candida sem finnast í blóði, líffærum (t.d. hjarta, lungum) eða þvagrás.
- Sveppasýkingu í slímhúðum – sýking í slímhúðinni sem þekur munninn og kokið að innan og
sár/eymsli eftir gervitennur.
- Sveppasýkingu í leggöngum eða á getnaðarlim.
- Sveppasýkingu í húð – t.d. fótsvepp (athlete‘s foot), búksvepp (ringworm), klofsvepp (jock
itch), naglsvepp.
Þú gætir einnig hafa fengið Fluconazol Krka til að:
- koma í veg fyrir að heilahimnubólga af völdum sætumyglu taki sig upp aftur.
- koma í veg fyrir að sveppasýking í slímhúðum taki sig upp aftur.
- minnka líkur á endurkomu sveppasýkingar í leggöngum.
- koma í veg fyrir að þú fáir sýkingu af völdum Candida (ef ónæmiskerfið þitt er veiklað og
starfar ekki eðlilega).
Börn og unglingar (0 til 17 ára)

- Sveppasýking í slímhúðum – sýking í slímhúðinni sem þekur munninn og kokið að innan.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Fluconazol Krka inniheldur - Virka innihaldsefnið er fluconazol: 50 mg, 100 mg, 150 mg eða 200 mg.
- Önnur innihaldsefni eru laktósaeinhýdrat, natríumlárýlsúlfat, magnesíumsterat, vatnsfrí
kísilkvoða og maíssterkja.
- Hylkisskel Fluconazol Krka 50 mg, 100 mg og 150 mg inniheldur: patent blátt V (E131), títan-
tvíoxíð (E171) og gelatín. Sjá kafla 2 „Fluconazol Krka 50 mg, 100 mg og 150 mg hörð hylki
innihalda mjólkursykur (laktósa) og natríum“.
- Hylkisskel Fluconazol Krka 200 mg inniheldur: títantvíoxíð (E171), asórúbín (E122), indigótín
(E132) og gelatín. Sjá kafla 2 „Fluconazol Krka 200 mg hörð hylki innihalda mjólkursykur
(laktósa), natríum og asórúbín“.
Lýsing á útliti Fluconazol Krka og pakkningastærðir
50 mg: blátt/hvítt hylki
100 mg: blátt/hvítt hylki
150 mg: blátt/blátt hylki
200 mg: fjólublátt/hvítt hylki
Þynna
50 mg: 100x1, 7, 10, 20, 28, 50 og 98 hylki
100 mg: 100x1, 7, 10, 20, 28, 50, 60 hylki
150 mg: 2, 4, 6, 12 hylki
200 mg: 100x1, 7, 10, 20, 28, 30, 50 hylki
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto
Šmarješka cesta 6
8501 Novo mesto
Slóvenía
Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið
LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is.