Lyf fyrir menn

Fluanxol Mite - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N05AF01
ATC Heiti: Flupentixolum
Norrænt Vörunúmer: 102051
Markaðsleyfishafi: H. Lundbeck A/S
Skráningardagsetning: 01.03.2013
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Fluanxol Mite er lyf við geðsjúkdómum.
Fluanxol Mite virkar á sérstökum svæðum í heilanum og hjálpar til við að leiðrétta ójafnvægið í
heilanum sem er ástæða einkennanna.
• Þú gætir fengið Fluanxol Mite við þunglyndi.
• Þú gætir einnig fengið Fluanxol Mite við kvíða og óróleika.
Fluanxol Mite dregur úr þunglyndi ásamt kvíða og óróleika.
Fluanxol Mite virkar á sérstökum svæðum í heilanum og hjálpar til við að leiðrétta ójafnvægið í
heilanum sem er ástæða einkennanna.
• Þú gætir fengið Fluanxol Mite við þunglyndi.
• Þú gætir einnig fengið Fluanxol Mite við kvíða og óróleika.
Fluanxol Mite dregur úr þunglyndi ásamt kvíða og óróleika.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Fluanxol Mite 0,5 mg og 1 mg filmuhúðaðar töflur innihalda: Virkt efni: Flúpentixól (á formi tvíhýdróklóríðs).
Önnur innihaldsefni: Betadex, laktósaeinhýdrat (mjólkursykur), maíssterkja, hýdroxýprópýlsellulósa,
örkristölluð sellulósa, natríum kroskarmellósa, talkúm, hert jurtaolía og magnesíumsterat.
Töfluhúð og litarefni: Pólývínýlalkóhól vatnsrofinn að hluta, títantvíoxíð (E171), makrógól/PEG 3350,
talkúm, gult járnoxíð (E 172), makrógól/PEG 6000.
Útlit Fluanxol Mite og pakkningarstærðir
Fluanxol Mite filmuhúðaðar töflur fást í styrkleikunum 0,5 mg og 1 mg.
Útlit
0,5 mg töflurnar eru kringlóttar, lítið eitt kúptar, gular með ígreyptu „FD“.
1 mg töflurnar eru egglaga, lítið eitt kúptar, gular með ígreyptu „FF“.
Pakkningarstærðir
0,5 mg töflur:
100 töflur í háþéttni pólýetýlen (HDPE) töfluíláti.
1 mg töflur:
100 töflur í háþéttni pólýetýlen (HDPE) töfluíláti.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
H. Lundbeck A/S
Ottiliavej 9
2500 Valby
Danmörk.
Umboð á Íslandi
Vistor hf.
sími 535 7000
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2021.
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar, www.lyfjastofnun.is.