Lyf fyrir menn

Ezetimib Medical Valley - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C10AX09
ATC Heiti: Ezetimibum
Norrænt Vörunúmer: 065583
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.07.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Ezetimib Medical Valley er lyf sem notað er til að lækka hækkuð gildi kólesteróls
Ezetimib Medical Valley lækkar gildi heildarkólesteróls, „slæma“ kólesterólið (LDL-
kólesteról) og fituefni nefnd þríglýseríð í blóði. Að auki eykur Ezetimib Medical Valley gildi
„ góða“ kólesterólsins (HDL–kólesteról).
Ezetimíb, virka innihaldefni Ezetimib Medical Valley, minnkar frásog kólesteróls úr meltingarvegi.
Ezetimib Medical Valley eykur kólesteróllækkandi áhrif statína, sem er flokkur lyfja sem minnkar
kólesterólið sem líkaminn myndar sjálfur.
Kólesteról er eitt af nokkrum fituefnum í blóðinu. Heildarkólesteról samanstendur aðallega af LDL- og
HDL-kólesteróli.
LDL-kólesteról er oft kallað „slæmt“ kólesteról vegna þess að það getur safnast fyrir í
slagæðaveggjum og myndað skellur. Að lokum getur þessi skellumyndun leitt til slagæðaþrengingar.
Þessi þrenging getur hægt á eða teppt blóðflæði til lífsnauðsynlegra líffæra eins og hjarta eða heila.
Teppa blóðflæðis getur leitt til hjartaáfalls eða heilaslags.
HDL-kólesteról er oft kallað „gott“ kólesteról vegna þess að það hjálpar til við að koma í veg fyrir að
slæma kólesterólið safnist fyrir í slagæðunum og er vörn gegn hjartasjúkdómum.
Þríglýseríð eru annað fituform í blóðinu sem getur aukið hættu á hjartasjúkdómi.
Lyfið er notað til meðferðar hjá sjúklingum sem geta ekki náð stjórn á kólesterólgildum með
kólesteróllækkandi mataræði eingöngu. Þú skalt halda áfram á kólesteróllækkandi mataræði meðan þú
tekur lyfið.
Ezetimib Medical Valley er notað ásamt kólesteróllækkandi mataræði ef eftirfarandi á við:
• ef um er að ræða hækkun á gildi kólesteróls í blóði (kólesterólhækkun af óþekktri orsök
[arfblendna ættgenga kólesterólhækkun og kólesterólhækkun sem ekki er ættgeng])
• það er notað samhliða statíni, þegar meðferð með statíni eingöngu nægir ekki til að hafa stjórn
á gildi kólesteról í blóðinu
• það er notað eitt sér þegar statínmeðferð er ekki talin viðeigandi eða þolist ekki
• ef um er að ræða arfgengan sjúkdóm (arfhreina ættgenga kólesterólhækkun) sem eykur
kólesterólgildi í blóðinu. Þá er einnig ávísað statíni og hugsanlega einnig annarri meðferð
• ef um er að ræða arfgengan sjúkdóm (arfhreina sítósterólhækkun, einnig þekkt sem
phytosterolaemia) sem eykur gildi plöntusteróla í blóði.
Ef þú ert með hjartasjúkdóm dregur Ezetimib Medical Valley í samsetningu með
kólesteróllækkandi lyfjum sem kallast statín úr hættu á hjartaáfalli, heilaslagi, skurðaðgerð til að
auka blóðflæði í hjarta eða sjúkrahúsinnlögn vegna brjóstverkjar.
Ezetimib Medical Valley hjálpar þér ekki að léttast.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Ezetimib Medical Valley inniheldur - Virka innihaldsefnið er ezetimíb. Hver tafla inniheldur 10 mg af ezetimíbi.
- Önnur innihaldsefni eru: Laktósaeinhýdrat, crospovidón (tegund B), copovidón,
natríumlaurýlsúlfat, örkristallaður sellulósi og magnesíumsterat.
Lýsing á útliti Ezetimib Medical Valley og pakkningastærðir
Ezetimib Medical Valley töflur eru hvítar eða beinhvítar, kringlóttar, ávalar töflur, u.þ.b. 6 mm í
þvermál.
Pakkningastærðir:
Gegnsæjar Triplex (PVC/PE/PVDC)/álþynnur sem eru opnaðar með því að ýta í gegn, í pakkningum
upp á 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50, 84, 90, 98, 100, 112 eða 300 töflur.
HDPE glas með kísilgelþurrkefni í pólýprópýlen loki.
Pakkningastærðir 100 töflur.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi:
Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
236 32 Höllviken
Svíþjóð
Framleiðandi:
Laboratorios Liconsa, S.A.
Avda. Miralcampo 7
Poligono Industrial Miralcampo.
19200 Azuqueca de Henares – Guadalajara
Spánn
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska Efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Finnland Ezetimib Medical Valley 10 mg tabletti
Svíþjóð Ezetimib Medical Valley 10 mg tabletter
Danmörk Ezetimib Medical Valley
Noregur Ezetimib Medical Valley 10 mg tablett
Holland Ezetimibe Medical Valley 10 mg Tablet
Ísland Ezetimib Medical Valley 10 mg töflur
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2026.