Lyf fyrir menn

Euthyrox - Tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: H03AA01
ATC Heiti: Levothyroxinum natrium
Norrænt Vörunúmer: 137690
Markaðsleyfishafi: Merck AB
Skráningardagsetning: 01.05.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Levótýroxín, virka efnið í Euthyrox, er sérframleitt skjaldkirtilshormón til að meðhöndla sjúkdóma og
starfstruflanir í skjaldkirtli. Áhrif þess eru þau sömu og af náttúrulegum skjaldkirtilshormónum.
Euthyrox er notað
- til að meðhöndla góðkynja stækkun á skjaldkirtli hjá sjúklingum með eðlilega
skjaldkirtilsstarfsemi,
- til að fyrirbyggja að skjaldkirtill stækki aftur eftir skurðaðgerð,
- til að koma í stað náttúrulegra skjaldkirtilshormóna, þegar skjaldkirtillinn framleiðir ekki
nægilegt magn af þeim,
- til að bæla æxlisvöxt hjá sjúklingum með krabbamein í skjaldkirtli.
Euthyrox 25 míkróg, 50 míkróg og 100 míkróg töflur eru einnig notaðar til að koma blóðgildum
skjaldkirtilshormóna í jafnvægi, þegar offramleiðsla hormóna er meðhöndluð með lyfjum við
ofstarfsemi skjaldkirtils.
Euthyrox 100 míkróg má einnig nota við prófun á starfsemi skjaldkirtils.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Euthyrox inniheldur - Virka innihaldsefnið er levótýroxín. Hver tafla inniheldur 25, 50 eða 100 míkrógrömm af
levótýroxínnatríum.
- Önnur innihaldsefni eru maíssterkja, sítrónusýra, kroskarmellosnatríum, gelatín,
magnesíumsterat og mannitól (E421).
Lýsing á útliti Euthyrox og pakkningastærðir
Euthyrox 25, 50 og 100 míkrógramma töflur eru hvítar, kringlóttar, flatar beggja vegna, með skákanti,
deiliskoru og áletrun EM25, EM50 og EM100 á annarri hliðinni:
Euthyrox fæst í pakkningum með 20, 25, 30, 50, 60, 90, 100 eða 500 töflum eða í dagatalspakkningum
með 28 eða 84 töflum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi
Merck AB
Box 3033
169 03 Solna
Svíþjóð
Framleiðandi
Merck Healthcare KGaA
Frankfurter Strasse 250
64293 Darmstadt
Þýskaland
FAMAR HEALTH CARE SERVICES MADRID, S.A.U.
Avda. Leganés, 62
Alcorcón, 28923 Madrid
Spánn
Umboð á Íslandi
Icepharma hf.
Lyngháls 13
110 Reykjavík
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Austurríki: Euthyrox
Danmörk: Euthyrox
Þýskaland: Euthyrox
Grikkland: Euthyrox
Ísland: Euthyrox
Króatía: Euthyrox
Noregur: Euthyrox
Portúgal: Eutirox
Spánn: Eutirox
Svíþjóð: Euthyrox
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í apríl 2024.