Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Estrogel - Hlaup
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Estrogel - Hlaup

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03CA03
ATC Heiti: Estradiolum
Norrænt Vörunúmer: 542474
Markaðsleyfishafi: Besins Healthcare Ireland Limited
Skráningardagsetning: 01.07.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Estrogel er tært hlaup sem borið er á húðina. Hlaupið berst til líkamans um húðina.

Estrogel er notað sem hormónauppbótarmeðferð.
Estrogel er notað við einkennum estrógenskorts. Estrógenskortur verður á breytingarskeiðinu eða við
brottnám beggja eggjastokka með skurðaaðgerð. Óþægindi sem fylgja estrógenskorti eru hitasteypur,
skapsveiflur, liðverkir og slímhúðarþurrkur í leggöngum og þvagrás.

Beinþynning getur einnig komið fram vegna estrógenskorts. Ef þú ert í aukinni hættu á beinbrotum
vegna beinþynningar og getur ekki nýtt þér önnur meðferðarúrræði eða önnur meðferðarúrræði hafa
ekki gagnast þér má nota Estrogel til að koma í veg fyrir slík beinbrot.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu í öðrum sjúkdómum eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Estrogel inniheldur
- Virka innihaldsefnið er estradíól.
- Önnur innihaldsefni eru karbómer 980, trolamín, etanól 96% og hreinsað vatn.

Lýsing á útliti Estrogel og pakkningastærðir
Estrogel er glært, litlaust eða næstum litlaust hlaup með daufri lykt af alkóhóli. Estrogel fæst í flösku
með skammtadælu sem gerir skömmtun lyfsins auðveldari.

Estrogel fæst í 80 g / 64 skammta pakkningastærðum.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Besins Healthcare Ireland Limited,
Plaza 4, Level 4, Custom House Plaza
Harbourmaster Place, International Financial Services Centre
Dublin 1
D01 A9N3
Írland

Framleiðandi
Besins Manufacturing Belgium Groot Bijgaardenstraat 128
1620 Drogenbos
Belgía

eða

Laboratoires Besins International
13 Rue Perrier,
92120 Montrouge
Frakkland

Umboð á Íslandi
Vistor hf.
Sími: 535 7000

Hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa á hverjum stað ef óskað er upplýsinga um lyfið

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður ágúst 2024