Lyf fyrir menn

Estrofem - Filmuhúðuð tafla
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: G03CA03
ATC Heiti: Estradiolum
Norrænt Vörunúmer: 154377
Markaðsleyfishafi: Novo Nordisk A/S
Skráningardagsetning: 01.05.2020
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Estrofem er kvenhormónauppbót (HRT). Lyfið inniheldur kvenhormónið estradíól. Estrofem er notað
hjá konum eftir tíðahvörf, sérstaklega hjá konum þar sem legið hefur verið fjarlægt (hafa farið í
legnám) og þurfa því ekki samsetta meðferð með estrógeni og prógestageni.
Estrofem er notað:
Til að draga úr einkennum eftir breytingaskeið
Magn estrógens sem líkaminn framleiðir minnkar á breytingaskeiði. Þetta getur valdið einkennum eins
og hita í andliti, hálsi og bringu (hitakóf). Estrofem dregur úr þessum einkennum eftir breytingaskeið.
Þú átt einungis að fá ávísað Estrofem ef einkenni hindra verulega daglegt líf.
Reynsla af meðferð kvenna eldri en 65 ára með Estrofem er takmörkuð.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Estrofem inniheldur – Virka innihaldsefnið: Estradíól 1 mg (sem estradíólhemíhýdrat).
– Önnur innihaldsefni: Laktósaeinhýdrat, maíssterkja, hýdroxýprópýlsellulósi, talkúm og
magnesíumsterat.
– Filmuhúð: Hýprómellósi, talkúm, títantvíoxíð (E 171), própýlenglýkól og rautt járnoxíð (E 172).
Lýsing á útliti Estrofem og pakkningastærðir
Estrofem filmuhúðaðar töflur eru rauðar og kringlóttar, 6 mm í þvermál. Töflurnar eru merktar með
NOVO 282 á annarri hliðinni.
Pakkningastærðir:
• 1x28 filmuhúðaðar töflur
• 3x28 filmuhúðaðar töflur
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Novo Nordisk A/S
Novo Allé
DK-2880 Bagsværd
Danmörk
Umboð á Íslandi
Vistor hf.
sími: 535 7000
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Austurríki, Belgía, Króatía, Danmörk, Finnland, Ísland, Lúxemburg, Portúgal: Estrofem
1 mg
Þýskaland: Estrifam 1 mg
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2024.
Upplýsingar sem hægt er að nálgast annars staðar
Ítarlegar upplýsingar um lyfið eru birtar á vef Lyfjastofnunar.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Hvernig nota á dagatalspakkninguna
1. Stilltu dagatalsskífuna
Snúðu skífunni í miðjunni þar til að litli plastfleygurinn vísar á vikudaginn.
2. Taktu fyrstu töfluna úr
Brjóttu plastfleyginn af og hvolfdu fyrstu töflunni úr.
3. Snúðu skífunni daglega
Snúðu gegnsæju skífunni réttsælis um 1 bil, í sömu átt og örin vísar, að næsta vikudegi. Hvolfdu næstu
töflu úr. Mundu að taka aðeins 1 töflu einu sinni á dag.
Aðeins er hægt að snúa gegnsæju skífunni eftir að búið er að taka töfluna, sem er undir opinu,
úr pakkningunni.