Lyf fyrir menn

EpiPen - Stungulyf, lausn
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C01CA24
ATC Heiti: Adrenalín (epinephrinum INN)
Norrænt Vörunúmer: 434829
Markaðsleyfishafi: Viatris ApS
Skráningardagsetning: 01.07.2007
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
EpiPen er sæfð lausn í áfylltum lyfjapenna til að sprauta í vöðva í bráðatilvikum.
EpiPen (adrenalín) sjálfvirka inndælingartækið á að nota til bráðameðferðar á alvarlegum
ofnæmisviðbrögðum (bráðaofnæmi) vegna ofnæmisvalda í t.d. mat, lyfjum, skordýrastungum eða -bitum,
sem og ofnæmisviðbrögðum sem koma fram við æfingu eða eru af óþekktum orsökum.
EpiPen sjálfvirkt inndælingartæki er ætlað til tafarlausrar lyfjagjafar hjá sjúklingum sem eru taldir vera í
aukinni hættu á bráðaofnæmi, þ.m.t. einstaklingum með sögu um bráðaofnæmisviðbrögð.
Byrjunareinkenni bráðaofnæmisviðbragða eru m.a.: Kláði í húð, upphleypt útbrot (eins og ofsakláði),
hitakóf, bjúgur á vörum, hálsi, tungu, höndum og fótum, aukahljóð við lungnahlustun, hæsi, ógleði,
uppköst, krampar í meltingarvegi og jafnvel meðvitundarleysi.
Lyfið í sjálfvirka inndælingartækinu (lyfjapennanum) er adrenalín sem er adrenvirkt lyf.
Það verkar beint á hjarta- og æðakerfið (blóðrásina) og öndunarfæri (lungun) og vinnur gegn einkennum
bráðaofnæmis sem geta verið lífshættuleg með því að verka fljótt til þrengingar æða, slökunar á vöðvum í
lungum til að bæta öndun, minnka bólgur og til örvunar á hjartslætti.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
EpiPen inniheldur Virka innihaldsefnið er adrenalín. Hver skammtur inniheldur 300 míkrógrömm af adrenalíni.
Önnur innihaldsefni eru natríum klóríð, natríummetabísúlfít (E223), saltsýra, vatn fyrir stungulyf.
Lýsing á útliti EpiPen og pakkningastærðir
Tær og litlaus lausn í áfylltum penna (sjálfvirku inndælingartæki).
Sjálfvirka inndælingartækið inniheldur 2 ml af lausn til inndælingar. Hvert sjálfvirkt inndælingartæki gefur
einn stakan skammt (0,3 ml) 0,3 mg af adrenalíni.
Lengd óvarinnar og varinnar nálar er u.þ.b. 15 mm.
Pakkningastærðir:
1 sjálfvirkt inndælingartæki.
2 x 1 sjálfvirk inndælingartæki.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi:
Viatris ApS
Borupvang 1
2750 Ballerup
Danmörk
Framleiðandi:
MEDA Pharma GmbH & Co. KG,
Benzstrasse 1,
D-61352 Bad Homburg,
Þýskaland
Umboð á Íslandi
Icepharma hf.
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Land Lyfjaheiti
Holland, Belgía, Ísland, Noregur, Finnland, Svíþjóð,
Danmörk, Austurríki, Slóvakía, Tékkland og
Ungverjaland.
EpiPen
Pólland EpiPen Senior
Spánn ALTELLUS 0,3 adultos.
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í janúar 2026.
Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.