Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka - Tafla
Lyf fyrir menn
undefined-image-placeholder

Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: C09BA02
ATC Heiti: Enalaprilum og þvagræsilyf
Norrænt Vörunúmer: 056339
Markaðsleyfishafi: Krka d.d. Novo mesto
Skráningardagsetning: 01.06.2019
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka er samsetning lyfjanna enalapril maleats og hydrochlorthiazids.
Enalapril maleat er svokallaður ACE-hemill (angítótensín breytiensímhemill) og verkar með því að
víkka blóðæðarnar, sem auðveldar hjartanu að dæla blóði um líkamann. Hydrochlorthiazid er
þvagræsandi lyf, sem verkar með því að auka magn vatns og salta sem losuð eru út um nýrun.
Samsetning enalaprils og hydrochlorthiazids lækkar blóðþrýstinginn.

Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka er notað til að meðhöndla háan blóðþrýsting sem ekki næst
fullnægjandi stjórn á með einu lyfi.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka inniheldur
- Virku innihaldsefnin eru enalapril maleat og hydrochlorthiazid.
Hver tafla inniheldur 20 mg af enalapril maleati, sem jafngildir 15,29 mg af enalaprili og
12,5 mg af hydrochlorthiazidi.
- Önnur innihaldsefni eru natríumvetniskarbónat, laktósa einhýdrat, maíssterkja, forhleypt sterkja,
talkúm og magnesíum sterat. Sjá kafla 2 „Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka inniheldur
mjólkursykur (laktósa) og natríum“.

Lýsing á útliti Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka og pakkningastærðir
Enalapril-Hydrochlorthiazid Krka töflur eru kringlóttar, hvítar og flatar. Þær eru með skoru á annarri
hliðinni og með skásniðnum brúnum.
Deiliskoran er eingöngu til þess að hægt sé að skipta töflunni svo auðveldara sé að kyngja henni en
ekki til þess að skipta henni í jafna skammta.

Pakkningastærðir: 28, 30, 98, 100, 110 og 120 töflur.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
KRKA, d.d., Novo mesto,
Šmarješka cesta 6,
8501 Novo mesto,
Slóvenía

Framleiðandi
KRKA, d.d., Novo mesto, Šmarješka cesta 6, 8501 Novo mesto, Slóvenía

Vinsamlega hafið samband við fulltrúa markaðsleyfishafa ef óskað er frekari upplýsinga um lyfið

LYFIS ehf.
Sími: 534 3500
Netfang: lyfis@lyfis.is

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2025.