Lyf fyrir menn

Elidel - Krem
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D11AH02
ATC Heiti: Pimecrolimus
Norrænt Vörunúmer: 187595
Markaðsleyfishafi: Viatris ApS
Skráningardagsetning: 01.09.2012
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Elidel krem inniheldur virka efnið pimecrolimus. Kremið inniheldur ekki stera.
Elidel krem verkar sértækt á bólgu í húð, sem kölluð er ofnæmishúðbólga (exem).
Það verkar í húðfrumum sem valda bólgu og þeim roða og kláða sem einkennir exem.
Kremið er notað til meðferðar við einkennum vægs eða í meðallagi alvarlegs exems (t.d. roða og
kláða) hjá börnum á aldrinum 3 mánaða til 17 ára og fullorðnum. Þegar það er notað til meðferðar við
fyrstu einkennum getur það komið í veg fyrir að sjúkdómurinn blossi alvarlega upp.
Elidel krem er einungis ætlað til notkunar eftir að önnur lyfseðilsskyld lyf eða rakakrem hafa reynst
ófullnægjandi, eða ef læknirinn telur rétt að nota ekki önnur lyfseðilsskyld lyf.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 6 vikna.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Elidel krem inniheldur • Virka innihaldsefnið er pimecrolimus. 1 gramm af Elidel kremi inniheldur 10 mg af
pimecrolimusi.
• Önnur innihaldsefni eru: Í meðallagi langar keðjur þríglýseríða, oleylalkóhól, própýlenglýkól
(E1520), sterýlalkóhól, cetýlalkóhól, ein- og tvíglýseríðar, natríumcetósterýlsúlfat,
benzýlalkóhól, vatnsfrí sítrónusýra, natríumhýdroxíð, hreinsað vatn.
Þetta lyf inniheldur 10 mg benzýlalkóhól og 50 mg própýlenglýkól (E1520) í hverju 1 g af kremi. Sjá
kafla 2.
Lýsing á útliti Elidel krems og pakkningastærðir
Elidel er hvítt, lyktarlaust krem sem ekki skilur eftir sig bletti og auðvelt er að bera það á.
Elidel er í 5 g, 15 g, 30 g, 60 g og 100 g túpum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Viatris ApS
Borupvang 1
2750 Ballerup
Danmörk
Framleiðandi
MEDA Manufacturing
Avenue J. F. Kennedy
33700 Merignac
Frakkland
Umboð á Íslandi
Icepharma hf.
Lynghálsi 13
110 Reykjavík
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í maí 2022.