Lyf fyrir menn

Duloxetine Medical Valley - Magasýruþolið hart hylki
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06AX21
ATC Heiti: Duloxetinum
Norrænt Vörunúmer: 028061
Markaðsleyfishafi: Medical Valley Invest AB
Skráningardagsetning: 01.09.2022
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Duloxetine Medical Valley inniheldur virka efnið duloxetín. Duloxetine Medical Valley hækkar gildi
serótóníns og noradrenalíns í taugakerfinu.
Duloxetine Medical Valley er notað hjá fullorðnum til meðhöndlunar á:
• þunglyndi
• almennri kvíðaröskun (kvíði eða taugaóstyrkur til langs tíma)
• taugaverkjum vegna sykursýki (oft lýst sem sviða, sting, stungu, leifturverk eða sársauka eðalíkt
og rafstuð. Svæðið getur orðið tilfinningalaust eða þannig að snerting, hiti, kuldi eða þrýstingur
geti valdið sársauka).
Duloxetine Medical Valley byrjar að virka hjá flestum einstaklingum með þunglyndi eða kvíða innan
tveggja vikna frá því að meðferð hefst en það getur tekið 2-4 vikur þar til þér fer að líða betur. Láttu
lækninn vita ef þér er ekki farið að líða betur eftir þennan tíma. Læknirinn getur haldið áfram að gefa
þér Duloxetine Medical Valley eftir að þér er farið að líða betur til að koma í veg fyrir að þunglyndið
eða kvíðinn komi aftur
Hjá einstaklingum með taugaverki vegna sykursýki geta liðið nokkrar vikur áður en þeim fer að líða
betur. Ræddu við lækninn ef þér er ekki farið að líða betur eftir 2 mánuði.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Duloxetine Medical Valley inniheldur - Virka innihaldsefnið er duloxetín, sem hýdróklóríð.
Hvert hylki inniheldur 30 mg af duloxetíni (sem hýdróklóríð).
Hvert hylki inniheldur 60 mg af duloxetíni (sem hýdróklóríð).
- Önnur innihaldsefni eru:
o Innihald hylkis: Sykurperlur, metakrýlsýra-etýlakrýlat samfjölliða (1:1) dreifilausn 30%
(Eudragit L30D55), hýprómellósi, súkrósi, vatnsfrí kísilkvoða, talkúm, tríetýlsítrat,
Plasacryl T20 (glýcerýlmónósterat, tríetýlsítrat, pólýsorbat 80, vatn)
o Hylkisskel:
- 30 mg hylki: Títantvíoxíð (E171), gelatín, FD&C Blue 2, vatn
- 60 mg hylki: Títantvíoxíð (E171), gelatín, FD&C Blue 2, gult járnoxíð (E172), vatn
Lýsing á útliti Duloxetine Medical Valley og pakkningastærðir
Duloxetine Medical Valley er magasýruþolið hart hylki. Hvert hylki inniheldur perlur af
duloxetínhýdróklóríði með húðun sem veitir vörn gegn magasýrum.
Duloxetine Medical Valley 30 mg hylki eru hörð gelatínhylki með ógegnsæju bláu loki og
ógegnsæjum hvítum bol.
Duloxetine Medical Valley 60 mg hylki eru hörð gelatínhylki með ógegnsæju bláu loki og
ógegnsæjum grænum bol.
PVC/ PCTFE gegnsæ álþynna og ál/álþynnupakkning
Duloxetine Medical Valley 30 mg magasýruþolin hörð hylki eru fáanleg í öskju með 7, 10, 28, 30, 56,
84, 98, 100 og 500 hylkjum.
Duloxetine Medical Valley 60 mg magasýruþolin hörð hylki eru fáanleg í öskju með 7, 10, 28, 30, 56,
84, 98, 100 og 500 hylkjum.
Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
236 32 Höllviken
Svíþjóð
Framleiðandi
Laboratorios LICONSA, S.A.
Avda. Miralcampo, Nº 7, Polígono Industrial Miralcampo
19200 Azuqueca de Henares (Guadalajara),
Spánn
Pharmascience International Limited
Julia House, Themistokli Dervi, 3
P.C. 1066, Nicosia
Kýpur
Medical Valley Invest AB
Brädgårdsvägen 28
236 32 Höllviken
Svíþjóð
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Holland
Duloxetine Xiromed 30 mg harde maagsapresistente capsules
Duloxetine Xiromed 60 mg harde maagsapresistente capsules
Þýskaland
Duloxetin AXiromed 30 mg magensaftresistente Hartkapseln
Duloxetin AXiromed 60 mg magensaftresistente Hartkapseln
Bretland
Duloxetine 30 mg hard gastro-resistant capsules
Duloxetine 60 mg hard gastro-resistant capsules
Svíþjóð
Duloxetine Medical Valley 30 mg hårda enterokapslar
Duloxetine Medical Valley 60 mg hårda enterokapslar
Danmörk Duloxetine “Medical Valley“
Noregur
Duloxetine Medical Valley 30 mg enterokapsel, hard
Duloxetine Medical Valley 60 mg enterokapsel, hard
Ísland
Duloxetine Medical Valley 30 mg magasýruþolin hörð hylki
Duloxetine Medical Valley 60 mg magasýruþolin hörð hylki
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2024.