Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Duloxetin W&H - Magasýruþolið hart hylki
Lyf fyrir menn
Duloxetin W&H-image

Duloxetin W&H - Magasýruþolið hart hylki

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: N06AX21
ATC Heiti: Duloxetinum
Norrænt Vörunúmer: 472610
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf.
Skráningardagsetning: 01.12.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Duloxetin W&H inniheldur virka innihaldsefnið duloxetín. Duloxetin W&H eykur styrk serótóníns og
noradrenalíns í taugakerfinu.

Duloxetin W&H er notað hjá fullorðnum til meðhöndlunar á:
• þunglyndi
• almennri kvíðaröskun (kvíði eða taugaóstyrkur til langs tíma)
• taugaverkjum vegna sykursýki (oft lýst sem sviða, sting, náladofa, leiftrandi eða þrautum eða
líkt við rafstuð. Svæðið getur orðið tilfinningalaust eða þannig að snerting, hiti, kuldi eða
þrýstingur geti valdið sársauka)

Duloxetin W&H byrjar að virka hjá flestum einstaklingum með þunglyndi eða kvíða innan tveggja
vikna frá því að meðferð hefst, en það getur tekið 2-4 vikur þangað til þér fer að líða betur.
Láttu lækninn vita ef þér er ekki farið að líða betur eftir þennan tíma. Læknirinn gæti haldið áfram að
gefa þér Duloxetin W&H eftir að þér er farið að líða betur til að varna því að þunglyndið eða kvíðinn
komi aftur.

Hjá einstaklingum með taugaverki vegna sykursýki geta liðið nokkrar vikur áður en þeim fer að líða
betur. Ræddu við lækninn ef þér er ekki farið að líða betur eftir 2 mánuði.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Duloxetin W&H inniheldur
- Virka innihaldsefnið er duloxetin.
Hvert hylki inniheldur 30 eða 60 mg af duloxetini (sem hýdróklóríð)

- Önnur innihaldsefni eru:
Innihald hylkis: Hýprómellósa, talkúm, títantvíoxíð, metakrýlsýru-etýlakrýlatkópólýmer,
natríumlárýlsúlfat, pólýsorbat 80, sykurperlur (maíssterkja og súkrósi) og súkrósi

Hylki: Gelatína, títantvíoxíð (E171), indigokarmín (E132), prentblek (svart járnoxíð (E172),
kalíumhýdroxíð og shellac). Hylkið fyrir 60 mg inniheldur einnig gult járnoxíð (E172).

Lýsing á útliti Duloxetin W&H og pakkningastærðir
Duloxetin W&H er hart sýruþolið hylki. Hvert Duloxetin W&H hylki inniheldur perlur af duloxetin
hýdróklóríði sem eru húðaðar til að vernda þær fyrir magasýrum.

Duloxetin W&H er fáanlegt í tveimur styrkleikum: 30 mg og 60 mg.
30 mg hylkin eru áletruð (lok “E”/botn “127”) blá og hvít (um það bil 15 mm á stærð).
60 mg hylkin eru áletruð (lok “E”/botn “129”) blá og græn (um það bil 19 mm á stærð).

Duloxetin W&H 30 mg eru fáanleg í þynnupakkningum með 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50, 56, 60, 84, 98
og 504 magasýruþolnum hörðum hylkjum og í glösum með 28 og 500 magasýruþolnum hörðum
hylkjum.
Duloxetin W&H 60 mg eru fáanleg í þynnupakkningum með 7, 10, 14, 20, 28, 30, 50, 56, 60, 84, 98
og 504 magasýruþolnum hörðum hylkjum og í glösum með 28 og 500 magasýruþolnum hörðum
hylkjum.

Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi
Markaðsleyfishafi: Williams & Halls ehf, Reykjavíkurvegi 62, 220 Hafnarfjörður
Framleiðandi: TOWA PHARMACEUTICAL EUROPE S.L., C/ San Martí, 75-97, Martorelles
08107, Martorelles, Barcelona, Spánn.

Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins undir eftirfarandi heitum:
Svíþjóð Dulmis
Frakkland DULOXETINE VIATRIS SANTE
Þýskaland Dulmis
Ísland Duloxetin W&H
Spánn Duloxetina Kern Pharma 30 mg cápsulas duras gastrorresiste
ntes EFG
Duloxetina Kern Pharma 60 mg cápsulas duras gastrorresistentes EFG

Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2025.