Lyf fyrir menn

Duac - Hlaup
Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: D10AF51
ATC Heiti: Clindamycinum í blöndum
Norrænt Vörunúmer: 115770
Markaðsleyfishafi: Stiefel Laboratories Legacy (Ireland) Ltd
Skráningardagsetning: 01.03.2018
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Duac hlaup inniheldur tvö lyf: klindamýcín og benzóýlperoxíð. Duac hlaup tilheyrir flokki lyfja sem
nefnist „sýkingalyf við gelgjubólum“.
Duac hlaup er notað til meðferðar við vægum til meðalslæmum þrymlabólum í húð.
• Klindamýcín er sýklalyf sem hindrar fjölgun baktería sem valda þrymlabólum.
• Benzóýlperoxíð fækkar fílapenslum og stífluðum fitukirtlum. Það drepur einnig bakteríur sem
eiga þátt í myndun þrymlabóla.
Notuð saman í Duac hlaupi virka þau með því að:
• vinna gegn bakteríum sem geta valdið þrymlabólum
• verka á fílapensla, stíflaða fitukirtla og bólur sem eru til staðar
• draga úr fjölda rauðra þrymlabóla með þrota.
Duac hlaup er ætlað fullorðnum og unglingum 12 ára eða eldri.

Pakkningar og aðrar upplýsingar
Duac hlaup inniheldur - Virku innihaldsefnin eru klindamýcínfosfat, jafngildir 1 % w/w (10 mg/g) klindamýcin og
benzóýlperoxíð (hýdrat), jafngildir 5 % w/w (50 mg/g) benzóýlperoxíð (vatnsfrítt).
- Önnur innihaldsefni eru karbómer, dímeticón, tvínatríumlaurýlsúlfósúccínat, tvínatríumedetat,
glýceról, vötnuð kísilkvoða, póloxamer 182, hreinsað vatn og natríumhýdroxíð.
Lýsing á útliti Duac hlaups og pakkningastærðir
• Duac hlaup kemur í eftirfarandi pakkningastærðum: 5, 6, 15, 25, 30, 50, 55, 60 og 70 g. Það er
hvítt til ljósgult einsleitt hlaup.
• Hver askja inniheldur eina túpu af Duac hlaupi.
• Ekki er víst að allar pakkningastærðir séu markaðssettar.
Markaðsleyfishafi
Stiefel Laboratories Legacy (Ireland) Ltd.
Unit 2, Building 2500, Avenue 2000, Cork Airport Business Park, Cork, Írland
Framleiðandi
GlaxoSmithKline Trading Services Limited
12 Riverwalk
Citywest Business Campus
Dublin 24
Írland
Umboð á Íslandi
Vistor hf.
Sími: 535 7000
Þetta lyf hefur markaðsleyfi í löndum Evrópska efnahagssvæðisins og í Bretlandi
(Norður-Írland) undir eftirfarandi heitum:
Danmörk: Clindoxyl Gel
Kýpur, Grikkland: Indoxyl Gel
Eistland, Ísland, Ítalía, Litháen, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svíþjóð: Duac gel
Finnland: Clindoxyl Geeli
Þýskaland: Duac Akne Gel
Holland: Duac Acne Gel
Tékkland, Litháen, Pólland: Duac
Írland, Malta, Bretland (Norður-Írland): Duac Once Daily Gel
Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í september 2023.
Ítarlegar upplýsingar um þetta lyf eru birtar á http://www.serlyfjaskra.is.