Beint í efni
Mínar Síður
Lyfjaskrá/
Doxylin - Tafla
Lyf fyrir menn
Doxylin-image

Doxylin - Tafla

Lyfseðilsskylt lyf
ATC Flokkur: J01AA02
ATC Heiti: Doxycyclinum
Norrænt Vörunúmer: 455949
Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Skráningardagsetning: 01.10.2008
Magn
Nauðsynlegt er að eiga gildan lyfseðil til að panta lyfjð.
Doxylin er sýklalyf. Það inniheldur virka efnið doxýcýklín sem er tetracýklín. Það hefur hamlandi
verkun á margar bakteríur og aðrar örverur.

Notað við sýkingum af völdum margs konar baktería og annarra örvera og sníkjudýra. Dæmi um
sýkingar sem lyfið er notað við: Berkju- og lungnabólga, húðsjúkdómar og kynsjúkdómar (einkum
klamýdía).
Lyfið hefur engin áhrif á veirur sem t.d. valda venjulegu kvefi og flensu.

Verið getur að læknirinn hafi ávísað lyfinu við öðrum sjúkdómi eða í öðrum skömmtum en tiltekið er í
þessum fylgiseðli. Ávallt skal fylgja fyrirmælum læknis og leiðbeiningum á merkimiða frá lyfjabúð.
Pakkningar og aðrar upplýsingar
Doxylin inniheldur

- Virka efnið er doxýcýklín.
- Önnur innihaldsefni eru örkristallaður sellulósi (E460), natríumkroskarmellósi (E464), póvídón,
talkúm (E553b) og magnesíumsterat (E470).

Lýsing á útliti Doxylin og pakkningastærðir

Töflurnar eru kringlóttar, grá-gular og má skipta til helminga. „AL“ er áletrað á annarri hliðinni.

Markaðsleyfishafi og framleiðandi

Markaðsleyfishafi
Actavis Group PTC ehf.
Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður

Framleiðandi
Balkanpharma-Dupnitsa AD
3 Samokovsko Shosse Str.
Dupnitsa 2600
Búlgaríu

Umboðsmaður á Íslandi
Teva Pharma Iceland ehf.

Dalshraun 1
220 Hafnarfjörður


Þessi fylgiseðill var síðast uppfærður í nóvember 2025.